fbpx
Fimmtudagur 16.maí 2024
Eyjan

Segir Bjarna skammast út í Dag þegar hann ætti að beina spjótum sínum að Sigurði Inga samráðherra sínum

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 2. október 2023 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í nýjasta Dagfarapistli sínum á Hringbraut skrifar Ólafur Arnarson að Bjarni Benediktsson reyni nú á lævíslegan hátt að koma sökinni á því að nú stefnir í að samgönguverkefnin á höfuðborgarsvæðinu, sem kennd eru við Samgöngusáttmálann stefna í að kosta 300 milljarða en ekki 160 milljarða eins og lagt var upp með, á meirihlutann í borginni og sérstaklega Dag B. Eggertsson borgarstjóra.

Ólafur bendir Bjarna á að líta sér nær; ábyrgðin á fyrirhugaðri yfirkeyrslu liggi hjá Sigurðu Inga Jóhannssyni, sem situr ásamt Bjarna við ríkisstjórnarborðið. Hann vitnar í Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóra Betri byggðar sem upplýsti í fjölmiðlum að þessar áætluðu fjárhæðir hafi orðið til á vegum Sigurðar Inga ári áður en Betri byggð var stofnuð. Davíð er fyrrverandi formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna og, að sögn Ólafs, smurður inn í innsta hring Sjálfstæðisflokksins.

Þá sé góður sjálfstæðismaður, Árni Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra flokksins og þingmaður til fjölda ára, formaður stjórnar Betri byggðar.

Ólafur bendir á að fulltrúar allra sveitarfélaga sem komu að stofnun Betri byggðar, nema Reykjavíkur, séu sjálfstæðismenn.

Hluti áætlaðrar kostnaðarhækkunar við Samgöngusáttmálann stafar af mikilli verðbólgu sem geisað hefur hér á landi en Ólafur telur einsýnt að draga verði úr umfangi sáttmálans í bili, fresta framkvæmdum, þótt mikilvægt sé að þær komist á koppinn, enda séu þessi verkefni þörf og óhjákvæmileg til að takast á við sívaxandi umferð á höfuðborgarsvæðinu öllu, ekki bara Reykjavík heldur öllu svæðinu. Nú búa þar 250 þúsund manns og hefur íbúum fjölgað um meira en 20 prósent á örfáum áru, nokkuð sem hljóti að hafa og hafi áhrif á umferðarþungann á svæðinu.

Ólafur telur örvæntingu sjálfstæðismanna vegna áratuga áhrifaleysis við stjórn Reykjavíkurborgar mögulega ráða því að sjálfstæðismenn reyni með ómerkilegum hætti að klína öllum vandanum vegna þessara vaxtaverkja á meirihlutann í borginni. Ekki sjái fyrir endann á eyðimerkurgöngu flokksins í borginni – kjósendur virðist engan áhuga hafa á að leiða Sjálfstæðisflokkinn aftur til forystu í borgarmálunum.

Þá bendir hann á ´mikið bruðl hjá ríkinu, sem fjármálaráðherra ber óneitanlega beina ábyrgð á. Verið sé að byggja fimm hæða kontór fyrir Alþingi og flytja utanríkisráðuneytið og hið óþarfa ráðuneyti í dýrasta skrifstofuhúsnæði landsins, auk þess sem búið sé að verja 500 milljónum í að grafa stóra holu fyrir glerhýsi við gamla stjórnarráðið. Nýrrar ríkisstjórnar bíði að fylla þá holu og tyrfa yfir.

Dagfara í heild má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Steinunn Ólína – ríkisstjórnin er eins og plastpokamaður
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar: Ung, gröð og rík í flutningi Svedda tannar

Jón Sigurður skrifar: Ung, gröð og rík í flutningi Svedda tannar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði

Reitir kynna áform um uppbyggingu á Kringlusvæði
Eyjan
Fyrir 1 viku

Um 25 þúsund gestir heimsóttu Verk og vit

Um 25 þúsund gestir heimsóttu Verk og vit