fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Eyjan

Sakar Guðrúnu Hafsteinsdóttur um reynsluleysi og bjánaskap sem Jón Gunnarsson hefði aldrei gerst sekur um

Eyjan
Laugardaginn 15. júlí 2023 20:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, fær harða gagnrýni fyrir tillögur sínar um að greiða aðkomu fólks að gosstöðvunum á Reykjanesi.

Í nýjum náttfarapistli á Hringbraut skrifar Ólafur Arnarson að Guðrún ætti frekar að standa með löggæslufólkinu sem vill takmarka fólksfjöldann á gosstöðvunum en að leggja til stækkun bílastæðis við Vigdísarvelli og að ruddur verður vegur að gosstöðvunum og fólki beint þangað gegn vilja lögreglu.

„Þessi afstaða er óskiljanleg og hlýtur að skrifast á reynsluleysi og fljótfærni nýja ráðherrans sem langar að láta til sín taka,“ skrifar Ólafur.

Hann bendir á að Tómas Guðbjartsson, læknir og umhverfisverndarmaður, hafi snuprað Guðrúnu vegna þessara hugmynda og telji tillögur hennar stuðla að meiriháttar umhverfisslysi. Tómas bendi á að gróður á þessum slóðum sé afar viðkvæmur og taka þurfi tillit til þess.

Ólafur hnykkir út með því að fullyrða að Jón Gunnarsson, forveri Guðrúnar í embætti, „hefði ekki látið bjánaskap af þessu tagi stjórna sínum gjörðum.“

Náttfara í heild er hægt að lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þeir slá úr og í

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þeir slá úr og í
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Sömu gildi og byggðu upp Ísland eru lykillinn að framtíðinni

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Sömu gildi og byggðu upp Ísland eru lykillinn að framtíðinni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Kolbrún komin með nóg af bókhaldslykla-kraðaki og segir að borgin eigi ekki að rannsaka sig sjálf í umdeildu málunum

Kolbrún komin með nóg af bókhaldslykla-kraðaki og segir að borgin eigi ekki að rannsaka sig sjálf í umdeildu málunum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Endurreisa þarf forgang almennings til orku hér á landi

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Hrund – Endurreisa þarf forgang almennings til orku hér á landi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Áhugafólk um okur á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi

Dagur hlessa á Guðlaugi Þór – Hafi nú tekið skoðun Dags upp á sína arma sem hann hafi skammast yfir lengi