

Alex Freyr Elísson er ósáttur við spiltíma sinn hjá Breiðabliki á tímabilinu og hyggst leita annað á láni í komandi félagaskiptaglugga.
Þetta herma öruggar heimildir 433.is.
Alex Freyr gekk í raðir Íslandsmeistara Blika frá Fram í vetur en hefur ekki tekist að brjóta sér leið inn í byrjunarliðið. Kappinn hefur aðeins komið við sögu í fjórum leikjum í Bestu deildinni það sem af er sumri. Þá er hann oft ekki í leikmannahópi Blika.
Sem fyrr segir vill Alex Freyr halda annað á lán í félagaskiptaglugganum sem opnar um miðjan mánuðinn. Hann er samningsbundinn Breiðabliki tvö tímabil til viðbótar.
Heimildir 433.is herma að nokkur lið séu áhugasöm um að fá hann til sín.
Alex Freyr var lykilmaður hjá Fram sem var nýliði í Bestu deild karla í fyrra.