

Einbýlishús við Vorsabæ í Árbæ er komið í sölu á fasteignavef DV.
Um er að ræða 178,6 fm eign á einni hæð, þar af bílskúr 38,8 gm, sem byggt var árið 1969.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, og þvottaherbergi. Með húsinu fylgir gámur úti í garði sem notaður hefur verið sem geymsla.
Húsið er staðsett í Árbænum, rétt við Elliðaárdalinn, sem er ein af náttúruperlum Reykjavíkur.

Þú getur lesið nánar um eignina og skoðað fleiri myndir á fasteignavef DV.