

Mikið magn af rusli má finna á víðavangi við Gerði í Straumsvík.
Davíð Arnar Stefánsson vakti athygli á málinu á Facebook og birti myndir með orðununum: „Bið ykkur um að dreifa þessu eða að láta Ro verk ehf, All verk ehf eða Transylvania ehf vita að ruslið þeirra sé við Gerði í Straumsvík og sé farið að fjúka. Stutt að fara í Sorpu við Breiðhellu.“

Aðspurður um hvort að það sé hefðbundið sjón að sjá einstaklinga henda rusli á svæðinu segir Davíð í samtali við DV: „Þetta hefur verið óvenju mikið í vetur, á þessum slóðum og víðar í upplandi Hafnarfjarðar; heimilissorp en sérstaklega mikið af byggingarefni – vaskar, klósett og tilheyrandi.“
Fjöldi fólks hefur skrifað athugasemdir við og deilt færslu Davíðs. „Þetta er mjög ljótt að sjá og finnst mér að Hafnarfjarðarbær ætti að fá að vita af svona löguðu og fylgjast með og vinna að ferli þessa ruslamáls. Hvort sem það eru fyrirtæki eða einstaklingar sem eiga í hlut, þá er þetta ekki löglegt,“ skrifar einn í athugasemd.
Eins og sjá má á myndum Davíðs má finna pappíra í ruslinu merkta fyrirtækjunum All Verk ehf., Ro verk ehf. og Transylvania ehf., sem öll eru á Breiðhellu 16 í Hafnarfirði og öll í eigu hjónanna Silviu og Mihaela Rotariu.
Í samtali við DV segir Silviu að þau hafi fengið ábendingu um málið. „Eigandinn er á staðnum að bíða eftir lögreglunni. Svo virðist sem þetta sé ekki rusl frá okkur og við munum fylla út lögregluskýrslu um málið.“
Silviu svarar aðspurð að greinilega sé um pappíra frá fyrirtækjum hennar að ræða. „Við vitum ekki hvernig þeir enduðu þarna. Við höfum ekkert að fela, en það virðist sem einhver sé að láta okkur líta illa út. Hver sem er getur greinilega séð að um er að ræða heimilissorp, en ekki rusl frá fyrirtæki.“
Silviu sendi jafnframt nokkrar myndir sem eigandi fyrirtækisins tók á staðnum.



