fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Eyjan

Meira en helmingi fleiri farþegar með PLAY í apríl og 72% sætanýting

Eyjan
Mánudaginn 9. maí 2022 12:21

Birgir Jónsson, forstjóri, Play. Mynd/Eyþór

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flugfélagið PLAY flutti 36.669 farþega í apríl sem eru meira en helmingi fleiri farþegar en í marsmánuði þegar PLAY flutti 23.677 farþega. Sætanýting var 72,4% samanborið við 66,9% í mars. Sætanýting jókst nokkuð mikið í apríl þrátt fyrir að fyrsta flug PLAY til Bandaríkjanna hafi verið undir lok mánaðar. Í tilkynningu frá félaginu segir að þessar tölur séu til marks um meiri eftirspurn á öllum mörkuðum PLAY í apríl . Þá fóru 90,1% flugferða PLAY fóru á réttum tíma í apríl samkvæmt tölum frá fyrirtækinu.  Þá hafi bókunarstaðan aldrei verið eins sterk og á undanförnum vikum og gerir félagið ráð fyrir því að sú þróun muni halda áfram, sérstaklega með tilkomu tengiflugs yfir Atlantshafið.

Fyrsta flug PLAY til Bandaríkjanna

Þann 20. apríl urðu þáttaskil í rekstri PLAY þegar fyrsta áætlunarferðin var farin vestur um haf til Bandaríkjanna. Áfangastaðurinn var Baltimore/Washington International-flugvöllurinn þangað sem flogið er daglega. Nú er hafinn næsti kafli í sögu félagsins með farþegaflutningum yfir Atlantshafið sem stækkar markaðssvæði félagsins til muna. Einnig bættist Dublin við leiðakerfi PLAY í apríl.

Átta nýir áfangastaðir í maí

Í maí bætast átta nýir áfangastaðir við leiðakerfi PLAY; Lissabon í Portúgal, Stafangur og Þrándheimur í Noregi, Malaga á Spáni, Prag í Tékklandi, Gautaborg í Svíþjóð, Boston í Bandaríkjunum og Brussel í Belgíu. PLAY verður því með 25 áfangastaði beggja vegna Atlantshafsins árið 2022.

„Á síðustu vikum og mánuðum höfum við greinilega fundið fyrir aukinni eftirspurn og frábærum viðtökum vegna nýrra áfangastaða. Eftir krefjandi vetur er gleðilegt að sjá aukna sætanýtingu og vaxandi farþegafjölda verða að veruleika. Við erum sannfærð um að þessi þróun komi til með að halda áfram enda er bókunarstaðan til framtíðar sterk, sérstaklega eftir að miðasala til Bandaríkjanna hófst en með því að flytja farþega yfir Atlantshafið eykst nýting á helstu áfangastaði okkar í evrópskum borgum. PLAY teymið hefur unnið sleitulaust að því markmiði að koma tengifluginu á koppinn og með nákvæmni og fagmennsku hefur okkur tekist að ná því markmiði,“ er haft eftir Birgi Jónssyni, forstjóra PLAY, í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir