fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

Áhorfendur sjá ekki allan keppnisvöllinn í milljarðahöllinni í Garðabæ

Björn Þorfinnsson
Fimmtudaginn 21. apríl 2022 08:45

Æft verður í Miðgarði.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miðgarður, nýtt fjölnota íþróttahús í Garðabæ er komið í fulla notkun og hefur gjörbreytt æfingaðstöðu fyrir knattspyrnuiðkendur í bænum. Auk æfinga fer talsvert af æfingaleikjum fram í húsinu en áhorfendur á þeim leikjum hafa rekið sig á það að ef setið er í einu af hinum 800 sætum sem í boði eru á 2.hæð hússins þá sést aðeins um 80-85% af vellinum. Samkvæmt svörum frá bænum var þó ekki um nein mistök að ræða heldur hafi byggingareiturinn verið svo takmarkandi fyrir breidd salarins að þetta var eina raunhæfa lausnin. Einblínt var á þarfir þjálfara og iðkenda en áhorfendur í raun látnir mæta afgangi.

Aðeins ætlað fyrir æfingaleiki

Íþróttahúsið glæsilega kostaði um 4 milljarða króna, alls um 18.200 fermetrar, og er stærsta framkvæmd sem sveitarfélagið Garðabær hefur lagt í. Innandyra er fullkominn keppnisvöllur í fullri stærð en það vakti talsverða athygli þegar í ljós kom að höllin var ekki lögleg undir keppnisleiki á hæsta stigi. Ástæðan var sú að lofthæð hallarinnar er aðeins 14 metrar en þyrfti að vera rúmlega 20 metrar til þess að uppfylla allar kröfur.

Í svari frá Garðabæ á sínum tíma kom fram að markmið byggingarinnar hefi verið að búa til bestu mögulegu æfingaaðstöðu en um leið uppfylla þarfir fyrir æfingaleiki og aðra viðburði sem ekki kerfjast meiri lofthæðar. Það hafi því ekki verið markmiðið að búa svo um hnútana að keppnisleikir á efsta stigi gætu farið þar fram innandyra.

Byggingareiturinn takmarkandi

Eins og áður segir hafa þó áhorfendur á æfingaleikjum rekið sig á að sjónlína þeirra á völlinn er verulega skert. Í svari við fyrirspurn DV ítrekar Kári Jónsson, íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi Garðabæjar að við innra skipulag hafi fyrst og fremst miðast við iðkendur og þjálfara við æfingar og keppni. „Áhorfendur sem mæta geta setið eða staðið í áhorfendabekkjum eða fært sig til hliðar til að vera nær handriðinu og þannig sýnt tillitssemi við þá sem sitja. Sjónlína er skert niður á hliðarlínuna næst þeim sem eru í stúkusætum enda ill mögulegt að tryggja 100% yfirsýn allra,“ segir Kári.

Til vinstri má sjá áhorendasæti á annarri hæð hússins. Sé setið í þeim sést ekki kantur vallarins.

Ástæðan fyrir því að áhorfendur mæta afgangi í húsinu er ekki síst sú að stærð byggingarreitar hússins var svo takmarkandi.

„Í alútboðsgögnunum sem sem unnum eftir og  hönnun byggir á, ásamt deilskipulagsskilmálum,  kemur fram að koma eigi 800 áhorfendum fyrir á svölum 2. hæðar. Það var sumsé ákveðið fyrirfram í alútboðsgögnum.  Byggingarreitur í deiliskipulagi var líka mjög takmarkandi fyrir breidd salarins og þar með sjónlínu gagnvart hliðarlínum knattspyrnuvallarins og sést það best af því að allar tillögurnar sem skilað var í alútboðinu á sínum tíma erum með mjög áþekkar lausnir/sjónlínur fyrir áhorfendur,“ segir í skriflegu svari frá arkitektinum Helga Má Halldórssyni, fyrir hönd hönnuða hússins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Liverpool setur á hann svimandi háan verðmiða vegna áhuga frá Spáni

Liverpool setur á hann svimandi háan verðmiða vegna áhuga frá Spáni
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Vinna við að spila fótbolta en horfa lítið á hann – „Næs að gleyma mér alveg þegar ég hef minn frítíma“

Vinna við að spila fótbolta en horfa lítið á hann – „Næs að gleyma mér alveg þegar ég hef minn frítíma“
433Sport
Í gær

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“

Eiga enn erfitt með að ræða síðasta sumar – „Þetta tók sinn tíma en maður verður að horfa upp á við“
433Sport
Í gær

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“

Ræða innkomu Ólafs í starfið – „Veit mikið og talar mikið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Rekinn korter í HM

Rekinn korter í HM
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir