fbpx
Mánudagur 16.júní 2025
Eyjan

Aðstoðarmaður Sigurðs Inga fékk bitling að launum – Ingveldur skipuð í varastjórn Isavia

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. apríl 2022 08:21

Ingveldur Sæmundsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gærkvöldið fór fram aðalfundur Isavia, rekstrarfélag flugvalla á Íslandi, og var hann haldin í Reykjanesbæ. Kristján Þór Júlíusson, fyrrum þing­ismaður sjálf­stæðis­flokks­ins í Norðaust­ur­kjör­dæmi og ráðherra, var kjörinn stjórnarformaður fyrirtækisins en auk hans í aðalstjórn voru kosin þau Hólm­fríður Árna­dótt­ir, Jón Stein­dór Valdi­mars­son, Matth­ías Páll Ims­land og Nanna Mar­grét Gunn­laugs­dótt­ir.

Einnig var kosið í varastjórn félagsins en þar vekur mesta athygli nafn Ingveldar Sæmundsdóttur, aðstoðarmanns Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra. Ingveldur hefur verið sökuð um að ljúga að fjölmiðlum, nánar tiltekið DV, þegar hún fullyrti að fréttir um að Sigurður Ingi hefði viðhaft rasísk ummæli á gleðskap í tengslum við Búnaðarþing væru algjört bull.

Daginn eftir baðst ráðherrann svo afsökunar á orðum sínum og kom þá í ljós að Ingveldur var ekki á staðnum þegar ummælin voru látin falla.

„Í svari mínu til DV í gær var ég segja frá því sem ég heyrði og varð vitni að og var það ekki borið undir ráðherra,“ segir í skriflegu svari Ingveldar þegar fréttastofa óskaði eftir skýringum á ummælum hennar,“ sagði Ingveldur í skriflegu svari til RÚV í kjölfarið.

Auk Ingveldar voru Dóra Sif Tynes, Sigrún Trausta­dótt­ir, Tóm­as Ell­ert Tóm­as­son og Valdi­mar Hall­dórs­son kos­in í vara­stjórn Ia­via.

Þá var árs­skýrsla Isa­via var gef­in út á fund­in­um og eru þar að finna helstu upp­lýs­ing­ar um rekst­ur Isa­via á ár­inu 2021.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Haukur segir ríkið skulda borginni fyrir flugvöllinn

Haukur segir ríkið skulda borginni fyrir flugvöllinn
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Alvarlegt flugslys í Indlandi – Full vél á leið til London Gatwick brotlenti

Alvarlegt flugslys í Indlandi – Full vél á leið til London Gatwick brotlenti
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Svandís boðar samstarf við aðra flokka

Svandís boðar samstarf við aðra flokka
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir það blasa við að „samstöðudans stjórnarmeirihlutans“ sé sérlega stirður milli tveggja flokka

Segir það blasa við að „samstöðudans stjórnarmeirihlutans“ sé sérlega stirður milli tveggja flokka
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Skrítin skilaboð frá seðlabankastjóra á óvissutímum

Svarthöfði skrifar: Skrítin skilaboð frá seðlabankastjóra á óvissutímum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Unnur forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip

Unnur forstöðumaður söludeildar innflutnings hjá Eimskip
Eyjan
Fyrir 1 viku

YAY og Landsbankinn stofna nýtt félag

YAY og Landsbankinn stofna nýtt félag
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tveggja turna tal

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Tveggja turna tal