Undanfarin misseri hefur Kristján Hreinsson rithöfundur birt harðorðar greinar um umhverfisverndarsamtökin Bláa herinn og stofnanda þeirra, Tómas J. Knútsson. Hefur Kristján sakað Tómas um að eigna sér heiður af verkum annarra, þiggja milljóna styrki fyrir verkefni sem hann inni ekki af hendi og birta ekki ársreikninga Bláa hersins.
Grein sem Kristján birti 15. febrúar í Fréttablaðinu virðist hafa verið kornið sem fyllti mælinn hjá Bláa hernum því greininni er svarað í Fréttablaðinu í dag og ýjað að væntanlegri málsókn í lokin. Í grein sinni amaðist Kristján við nýveittum 7.500.000 kr. styrk til handa Bláa hernum og sagði meðal annars:
„Í tveimur blaðagreinum á síðasta ári benti ég á það spillingarafl sem Blái herinn er. Ég hef sýnt og sannað að þar er ekki á ferðinni neinn her, heldur einn hermaður sem fær helling af peningum úr vösum skattgreiðenda fyrir að gera ekkert nema skreyta sig stolnum fjöðrum. Þetta hef ég sýnt og sannað með svo óyggjandi hætti að eigandi Bláa hersins hefur ekki mótmælt einu orði af því sem í greinum mínum kemur fram.“
Telur Kristján styrkinn bera vitni um spillingu:
„Núna er staðreyndin sú að bláa höndin ætlar að veita Bláa hernum 7.500.000 krónur í styrk. Sjö og hálf milljón fer frá sjálfstæðismanni til Bláa hersins og skattgreiðendur borga. Ég gæti skilið þennan vitleysisgang ef Blái herinn hefði gert eitthvað til að verðskulda sjö og hálfa milljón í styrk. Staðreyndin er hins vegar sú að þessi svokallaði her hefur ekkert unnið sem vert er að styrkja. Engu að síður er mokað peningum í mann sem laug til sín fálkaorðu með því að þykjast vera æðislega duglegur og með því að birta af sér myndir þar sem hann er í fjöruferð með forseta Íslands. Þetta er ekkert grín.“
Kristján ber Bláa hernum annars vegar á brýn að skila ekki ársreikningi og hins vegar að vinna ekki þau verkefni sem hann fær styrk af almannafé til að vinna.
Sjá einnig: Kristján segir Tómas fá milljóna styrki í verkefni sem aldrei eru unnin
Í grein Bláa hersins í Fréttablaðinu í dag segir:
„Undanfarið misseri hefur Kristján Hreinsson birt þrjár greinar í Fréttablaðinu þar sem hann hefur sakað Bláa herinn og þá sem að honum standa um lygar, spillingu, lögbrot og óheiðarleg vinnubrögð. Stjórn og stofnandi Bláa hersins hafa hingað til ekki talið þessi skrif svaraverð þar sem greinarnar dæma sig sjálfar. En eftir síðustu grein sem birtist í Fréttablaðinu 15. febrúar síðastliðinn og ber titilinn Blái herinn og bláa höndin, teljum við okkur knúin til að svara þeim ásökunum og ósannindum sem Kristján leggur fram.“
Er síðan bent á að á starfstíma Bláa hersins hafi yfir 200 kílómetrar af strandlengju verið hreinsaðir og 10 þúsund sjálfboðaliðum leiðbeint af hálfu samtakanna:
„Blái herinn hefur starfað síðan 1995 og varð formlega frjáls félagasamtök 1998. Hann var stofnaður af Tómasi Knútssyni til að standa að strandhreinsunum kringum Ísland til að sporna við plastmengun í hafi. Á þeim 27 árum sem Blái herinn hefur verið starfræktur hefur Tómas leitt og leiðbeint yfir 10 þúsund sjálfboðaliðum ásamt fyrirtækjum, skólum og samtökum í baráttunni við plastmengun í hafi. Þá hafa ríflega 200 kílómetrar strandlengju verið hreinsaðir og safnað vel á annað þúsund tonnum af plasti, veiðarfærum og öðru rusli. Allt efni sem safnað hefur verið í fjöruhreinsunum hefur farið í viðurkenndar móttökustöðvar um land allt.“
Blái herinn fer yfir ávirðingar Kristjáns og hafnar þeim. Telja samtökin ásakanir Kristjáns um að Tómas hafi logið til sín fálkaorðu vera mjög alvarlegar:
„Blái herinn hefur starfað síðan 1995 og varð formlega frjáls félagasamtök 1998. Hann var stofnaður af Tómasi Knútssyni til að standa að strandhreinsunum kringum Ísland til að sporna við plastmengun í hafi. Á þeim 27 árum sem Blái herinn hefur verið starfræktur hefur Tómas leitt og leiðbeint yfir 10 þúsund sjálfboðaliðum ásamt fyrirtækjum, skólum og samtökum í baráttunni við plastmengun í hafi. Þá hafa ríflega 200 kílómetrar strandlengju verið hreinsaðir og safnað vel á annað þúsund tonnum af plasti, veiðarfærum og öðru rusli. Allt efni sem safnað hefur verið í fjöruhreinsunum hefur farið í viðurkenndar móttökustöðvar um land allt.“
Í greininni segir að Blái herinn hafi unnið þrekvirki á sviði umhverfsiverndar allt frá stofnun. Er Kristján sakaður um ærumeiðingar og munu Blái herinn og Tómas, stofnandi hans, leita réttar síns í málinu:
„Blái herinn hefur unnið þrekvirki á sviði umhverfisverndar frá stofnun og allt sem Blái herinn gerir er unnið fyrir opnum tjöldum. Bendir stjórn Bláa hersins á að ársskýrsla Bláa hersins er öllum aðgengileg á heimasíðu hans og hefur m.a. verið send umhverfisráðuneytinu ár hvert. Blái herinn hefur ávallt verið rekinn með hagsmuni umhverfisins að leiðarljósi og stjórnin harmar að óeigingjarnt starf Tómasar sé dregið í efa. Stjórn Bláa hersins er ekki ljóst hvað Kristjáni Hreinssyni gengur til með sínum skrifum en skýrt er að stjórn Bláa hersins og Tómas Knútsson munu leita réttar síns varðandi þau ærumeiðandi ummæli sem Kristján Hreinsson hefur birt gagnvart Tómasi.“
Sjá grein Bláa hersins í Fréttablaðinu