fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
433Sport

Hin konan rýfur þögnina eftir yfirlýsingu Kolbeins – Jóhanna Helga telur Kolbein hafa rofið sátt í málinu

Erla Dóra Magnúsdóttir
Fimmtudaginn 2. september 2021 18:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin konan sem Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsmaður, veittist að á skemmtistað árið 2017 steig fram í fréttatíma Stöðvar 2 í kvöld í kjölfar þess að Kolbeinn sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann sagðist aldrei hafa gengist við því að hafa beitt hana og Þórhildi ofbeldi. Hún segir að Kolbeinn sé að saka þær um lygar og telur að hann hafi með yfirlýsingu sinni brotið gegn sátt sem gerð var í málinu.

Jóhanna Helga Jensdóttir, áhrifavaldur, segir að hún hafi verið stödd á skemmtistaðnum B5 umrætt kvöld árið 2017 þegar Þórhildur Gyða Arnardóttir leitar til hennar eftir aðstoð út af Kolbeini.

„Ég var að spjalla við samstarfsfólk mitt og þá kemur Þórhildur og bankar á hurðina og er í greinilegu uppnámi og Kolbeinn á eftir henni með bara læti,“ segir Jóhanna.

„Og ég segi við hana að hann skuldi henni afsökunarbeiðni og þá ræðst hann í raun á mig með orðum og bara ósæmilegri hegðun. Mér leið ekki vel með hvernig hans nærvera var, fannst hann ógnandi og ákvað að fara út og spjalla við dyraverði þar.“

Á leiðinni sullaði Jóhanna þá óvart úr glasi yfir Kolbein og segir að við þetta hafi hann reiðst mikið, gripið í hana, dregið til hliðar og verið mjög ógnandi.

„Er í raun bara að ógna mér mjög mikið og ætlar í rauninni bara að slá til mín og þá er gripið inn í,“ segir Jóhanna.

Hún segir að hún hafi fengið við þetta marbletti og áverka sem hún hafi haft í einhverjar vikur. Bæði hún og Þórhildur hafi kært þetta til lögreglu.

Síðan hafi haft samband við þær lögmaður sem bauð þeim að skrifa undir þagnaskyldusamning og þiggja 300 þúsund krónur í bætur. Þær hafi hafnað því og í kjölfarið verið boðið sitt hvor 1,5 milljónin og þá stungið upp á því að Kolbeinn myndi líka greiða 3 milljónir til Stígamóta.

Hún hafi svo talið að málinu væri lokið þar til í gær þegar Kolbeinn sendi frá sér yfirlýsingu og sagðist þar aldrei hafa gengist við því að beita þær ofbeldi. Jóhanna segist hafa orðið slegin er hún las yfirlýsinguna og líti svo á að sátt sem hafi náðst í málinu sé nú rofin.

Hún segir Kolbein í raun ráðast á hana og Þórhildi með yfirlýsingu sinni og saka þær um lygar og því hafi hún ákveðið að stíga fram.

„Hann er að segja að við séum að ljúga sem er bara ekki rétt og þess vegna er ég að stíga fram“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Mörgum brugðið vegna mynda af leikvanginum sem Ísland mun spila á

Mörgum brugðið vegna mynda af leikvanginum sem Ísland mun spila á
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Arsenal flaug áfram – Chelsea og City áttu aldrei séns

Arsenal flaug áfram – Chelsea og City áttu aldrei séns
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ótrúleg atburðarás í Afríku – Marokkó dæmdur sigur tveimur mánuðum eftir úrslitaleikinn

Ótrúleg atburðarás í Afríku – Marokkó dæmdur sigur tveimur mánuðum eftir úrslitaleikinn
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum
FIFA hafnar beiðni Íran
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Fannst látinn nálægt vinsælum áfangastað ferðamanna – Með skotsár á höfði

Fannst látinn nálægt vinsælum áfangastað ferðamanna – Með skotsár á höfði
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Alonso sagður setja þessi skilyrði fyrir því að taka við Liverpool

Alonso sagður setja þessi skilyrði fyrir því að taka við Liverpool
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum
Lineker skýtur á BBC
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Rooney nefnir einn aðila sem hann vill ekki sjá að taki við United

Rooney nefnir einn aðila sem hann vill ekki sjá að taki við United
433Sport
Í gær

Segir United að gefa Bruno það sem hann fer fram á – Hafa ekki efni á því að missa hann

Segir United að gefa Bruno það sem hann fer fram á – Hafa ekki efni á því að missa hann