fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Íslenskur landsliðsmaður sagður hafa flúið lögreglu nokkrum tímum eftir fögnuð með þjóðinni – Sakaður um að ganga ber­serks­gang

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 1. september 2021 21:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 5. júlí árið 2016 var lögreglan í Hafnarfirði kölluð að heimili í Garðabæ. Fréttablaðið greinir frá því að ástæðan fyrir útkallinu hafi verið sú að Ragnar Sigurðsson, landsliðsmaður í fótbolta og leikmaður Fylkis í Pepsi-Max-deildinni, hafi gengið berserksgang á heimilinu. Hann er sagður hafa brotið allt og bramlað og hótað þáverandi eiginkonu sinni.

Ragnar var ekki lengur á heimilinu þegar lögreglan kom á staðinn en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var íbúðin í slæmu ástandi og víða var að sjá skemmdir. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins á KSÍ að hafa fengið upplýsingar um málið frá nágrönnum Ragnars og þáverandi eiginkonu hans.

Kvöldið 4. júlí, nokkrum klukkustundum áður en lögreglan var kölluð út að heimilinu, var verið að taka á móti íslenska karlalandsliðinu og fagna árangri liðsins á Evrópumótinu í Frakklandi. Ragnar var með í þeim fögnuði og var til að mynda uppi á sviði á Arnarhóli ásamt liðsfélögum sínum í landsliðinu. Nóttina eftir fögnuðinn barst lögreglunni svo símtal frá nágranna Ragnars og eiginkonu hans.

Ragnar á að hafa verið boðaður í skýrslutöku nokkrum dögum eftir þetta samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Hann er sagður hafa neitað fyrir þær sakir sem honum voru gerðar, hann sagðist ekki hafa beitt þáverandi eiginkonu sína ofbeldi né sýnt ógnandi hegðun. Þáverandi eiginkona Ragnars mætti einnig í skýrslutöku vegna málsins.

Málið var eftir það fellt niður og engin ákæra var gefin út. Nágrannar Ragnars á þessum tíma eiga, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, að hafa hringt í KSÍ til að tilkynna þeim um meint heimilisofbeldi landsliðsmannsins. Þá segir að KSÍ hafi ekki gert neitt í málinu og að það hafi verið þaggað niður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

U-beygja ekki í kortunum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum

Messi og félagar tóku ekki í mál að spila á Spáni og ekki verður af leiknum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“

Klókur Íslendingur vann tæpar 18 milljónir – „Ég var svo stressaður að ég bauð konu minni út að borða“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney

Myndband: Uppákoma á BBC vekur athygli – Virtist óvart strá salti í sár Rooney
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar

Þetta er verðmiðinn á Wharton í sumar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Annar í viðræður við Arsenal

Annar í viðræður við Arsenal
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Höskuldur lýsir því hvernig Ólafur kom inn í hlutina í Kópavogi – „Það þarf ekki að kollvarpa öllu“

Höskuldur lýsir því hvernig Ólafur kom inn í hlutina í Kópavogi – „Það þarf ekki að kollvarpa öllu“
433Sport
Í gær

Leikmenn Breiðabliks spurðir út í umræðuna um yfirburði Víkings – „Gott að hafa breidd en þú þarft að halda öllum góðum líka“

Leikmenn Breiðabliks spurðir út í umræðuna um yfirburði Víkings – „Gott að hafa breidd en þú þarft að halda öllum góðum líka“
433Sport
Í gær

Segir að Infantino myndi taka HM af Bandaríkjunum ef hann hefði smá sómakennd – Svartur blettur á knattspyrnunni til frambúðar

Segir að Infantino myndi taka HM af Bandaríkjunum ef hann hefði smá sómakennd – Svartur blettur á knattspyrnunni til frambúðar