fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
Fréttir

Starfsfólk undirmannaðrar geðdeildar í uppnámi – Telja lögreglu hafa farið offari í manndrápsrannsókn

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 31. ágúst 2021 21:00

Landspítalinn við Hringbraut

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Starfsfólki geðdeildar Landspítalans við Hringbraut er verulega brugðið vegna ásakana um að samstarfskona þeirra hafi gerst sek um manndráp. Rannsókn málsins er í fullum gangi og samkvæmt heimildum DV telja sumir starfsmenn að lögregla hafi farið offari með því að hneppa starfsmanninn, sem starfar sem hjúkrunarfræðingur, í gæsluvarðhald.

Eins og fram hefur komið sendi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu frá sér tilkynningu um helgina að rannsókn væri hafin á andláti konu á sextugsaldri sem lést á Landspítalanum fyrr í mánuðinum. Tilkynningin var send út í kjölfar fyrirspurnar RÚV um málið.

Deildin, þar sem harmleikurinn átti sér stað, hefur það orð á sér að vera undirmönnuð og starfsálag þar mikið. Sú staða var uppi á teningnum þann örlagaríka dag þegar andlátið átti sér stað.  Á umræddri deild áttu tveir hjúkrunarfræðingar að vera á vakt en aðeins ein staða var mönnuð.

Fram hefur komið að andlátið hafi  átt sér stað í matartíma og að konan hafi kafnað. Í frétt Vísis um málið kom fram að grunur léki á að hjúkrunafræðingurinn hafi þvingað mat ofan í sjúklinginn með þessum hræðilegu afleiðingum.

Þá er mikil óánægja uppi meðal starfsfólk yfir því að hin látna hafi yfirhöfuð verið vistuð á deildinni þetta kvöld. Hún glímdi við veikindi sem urðu til þess að hún hafði skömmu áður hún verið flutt á bráðamóttöku til aðhlynningar. Starfsfólk geðdeildarinnar hafi undrast mjög að viðkomandi hafi verið send aftur á geðdeildina að því loknu.

Hinn grunaði hjúkrunarfræðingur var úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna þann 25. ágúst síðastliðinn. Landsréttur komst að öndverðri niðurstöðu og felldi gæsluvarðahaldsúrskurðinn úr gildi í gær, 30. ágúst. Var það mat dómstólsins að ekki væru slíkir rannsóknarhagsmunir í húfi að svo stöddu að réttlætanlegt væri að hafa hjúkrunarfræðinginn áfram í haldi.

Ágúst Ólafsson, lögmaður hjá Lagarökum, sem gætir hagsmuna aðstandenda hinar látnu segir fjölskylduna harmi slegna og að þau líti málið allt mjög alvarlegum augum. Fjölskyldan muni þó ekki fella neina dóma fyrr en allar upplýsingar í málinu liggi fyrir né tjá sig frekar um málið að svo stöddu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði og maður lenti í sjónum

Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði og maður lenti í sjónum
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Stærsti gagnagrunnur íslenskrar tónlistar að hverfa – Hvorki ríkið né auglýsendur sýndu áhuga

Stærsti gagnagrunnur íslenskrar tónlistar að hverfa – Hvorki ríkið né auglýsendur sýndu áhuga
Fréttir
Í gær

Er forseti Kína á útleið? – Hreinsanir sagðar hafnar

Er forseti Kína á útleið? – Hreinsanir sagðar hafnar
Fréttir
Í gær

Trump með svipuna á lofti – Rak þrjá saksóknara

Trump með svipuna á lofti – Rak þrjá saksóknara
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þórdís Kolbrún ómyrk í máli: „Við erum slök­ust og staðan fer versn­andi“

Þórdís Kolbrún ómyrk í máli: „Við erum slök­ust og staðan fer versn­andi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Helga með áhyggjur af skólakerfinu – Barnið fær engar einkunnir í skólanum, bara liti

Helga með áhyggjur af skólakerfinu – Barnið fær engar einkunnir í skólanum, bara liti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Eiríkur varð fyrir líkamsárás þegar hann var bæjarstjóri – „Ég var bara fljótur að koma mér undan þannig að það sá ekki á mér“

Eiríkur varð fyrir líkamsárás þegar hann var bæjarstjóri – „Ég var bara fljótur að koma mér undan þannig að það sá ekki á mér“