fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
433Sport

Pepsi Max-deild kvenna: Þróttur upp fyrir Stjörnuna með sigri – Keflavík með mikilvægan sigur í fallbaráttunni

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 17. ágúst 2021 21:12

Þórdís Elva (lengst til hægri á myndinni) í leik með Fylki.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrír leikir fóru fram í Pepsi Max-deild kvenna í kvöld. Leikið var í 14. umferð.

Þór/KA 1-0 Tindastóll

Þór/KA tók á móti Tindastól á SaltPay-vellinum á Akureyri. Heimakonur fóru með mikilvægan sigur af hólmi.

Karen María Sigurgeirsdóttir skoraði eina mark leiksins á 19. mínútu.

Í blálokin fékk Shaina Faiena Ashouri tækifæri til að tvöfalda forystu Þór/KA af vítapunktinum en allt kom fyrir ekki.

Það kom þó ekki að sök. Lokatölur 1-0.

Þór/KA er í sjötta sæti deildarinnar með 18 stig. Tindastóll er á botninum með 11 stig, þó aðeins stigi frá öruggu sæti.

ÍBV 1-2 Keflavík

Keflavík heimsótti ÍBV til Vestmannaeyja og vann mikilvægan sigur í fallbaráttunni.

Birta Hallgrímsdóttir kom gestunum yfir á 10. mínútu.

Snemma í seinni hálfleik varð Guðný Geirsdóttir, leikmaður ÍBV, fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark. Keflavík komið í 0-2.

Um stundarfjórðungi síðar fékk Guðný svo að líta rauða spjaldið.

Manni færri tókst Eyjakonum að minnka muninn á 72. mínútu. Þá skoraði Þóra Björg Stefánsdóttir.

Nær komust þær þó ekki. Lokatölur 1-2.

ÍBV er í sjöunda sæti deildarinnar með 16 stig. Keflavík er sæti neðar með 12 stig.

Þróttur 2-0 Stjarnan

Þróttur fór upp fyrir Stjörnuna í baráttunni um þriðja sæti með sigri á heimavelli.

Heimakonur komust yfir snemma í seinni hálfleik þegar Guða Kristín Gunnarsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, gerði sjálfsmark.

Dani Rhodes kom Þrótti í 2-0 þegar tíu mínútur lifðu leiks. Þar við sat.

Þróttur er í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig. Stjarnan er sæti neðar með 20 stig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Lineker skýtur á BBC
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Neymar í sárum en vonar að draumurinn rætist

Neymar í sárum en vonar að draumurinn rætist
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Rooney nefnir einn aðila sem hann vill ekki sjá að taki við United

Rooney nefnir einn aðila sem hann vill ekki sjá að taki við United
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sorglegt andlát 22 ára karlmanns sem var í leit að næsta tækifæri – Dánarorsök liggur ekki fyrir

Sorglegt andlát 22 ára karlmanns sem var í leit að næsta tækifæri – Dánarorsök liggur ekki fyrir
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Telur að vonarstjarna Arsenal missi af leikjum á næstunni – Þarf að mæta í skólann og taka próf

Telur að vonarstjarna Arsenal missi af leikjum á næstunni – Þarf að mæta í skólann og taka próf
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ræðir fíkn sem fáir eru að tala um – Eyðilagði draum hans sem ungur maður

Ræðir fíkn sem fáir eru að tala um – Eyðilagði draum hans sem ungur maður
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

City horfir til Tottenham – Búast við afslætti ef Spurs fellur

City horfir til Tottenham – Búast við afslætti ef Spurs fellur