

Undanfarin misseri hafa erlend morðmál þar sem Íslendingar spila stór hlutverk verið áberandi í fjölmiðlum. Þónokkur dæmi eru um Íslendinga sem annað hvort eru grunaðir um morð, eða hafa hreinlega verið dæmdir fyrir slíkan verknað. Síðustu vikur hefur DV fjallað um mál Daníels Gunnarssonar og Guðmundar Freys Magnússonar, sem báðir eru grunaðir um hrottaleg morð, annars vegar í Bandaríkjunum og hins vegar á Spáni.
Í ljósi þess hve mörg mál sem þessi eru til ákvað DV að taka saman Íslendinga sem eru grunaðir, eða hafa verið dæmdir fyrir morð erlendis á síðustu árum. Umfjöllunin er í tveimur hlutum, og þetta er seinni hlutinn. Sá fyrri birtast í gærmorgun.
Sjá einnig: Ljúfur og indæll Íslendingur drap ástsælan útvarpsmann með óvenjulegu morðvopni
DV greindi fyrst íslenskra miðla frá máli Daníels Gunnarssonar, sem er grunaður um að hafa orðið Katie Pham að bana í Kalíforníufylki Bandaríkjanna í maí á þessu ári. Lík hennar fannst í bílskúr en þar var Daníel líka. Hann var handtekinn skömmu síðar með blóð á höndum og hálsi auk þess sem blóð fannst á buxum hans.
Áverkar á líki Pham voru miklir en meðal annars var hún með mörg stungusár á líkama og aftan á höfði. Þá leikur grunur á að lík Pham hafi verið aflimað eftir dauða hennar. Talið er að Daníel hafi notað ísnál við verknaðinn.
Daníel er fæddur árið 2000. Hann hefur búið í borginni Ridgecrest í ríkinu gyllta undanfarin ár. Þangað flutti hann frá Íslandi ásamt móður sinni sem var af tékknesku bergi brotin en faðirinn er íslenskur.
Pham hafði verið bekkjarsystir og kærasta Daníels. Sú kenning hefur verið reifuð í miðlum vestanhafs að um ástríðuglæp hafi verið að ræða.
Lárus Freyr Einarsson fékk fjórtán ára fangelsisdóm árið 2011 fyrir að myrða Chanette Sörensen í smábænum Lundi, Danmörku. Hann stóð fyrir utan heimili hennar og skaut þremur skotum að því, en eitt þeirra hæfði Chanette í höfuðið, sem lést skömmu síðar í örmum dóttur sinnar.
Ástæðan fyrir morðinu var fíkniefnaskuld en samkvæmt dóttur Chanette skuldaði Lárus henni 19 þúsund danskar krónur. Chanette var úr fjölskyldu sem tengdist fíkniefnaviðskiptum, eiginmaður, systir og mágur hennar höfðu öll fengið margra ára fangelsisdóm vegna fíkniefnalagabrota.
Samverkamaður Lárusar fékk tólf ára fangelsisdóm. Báðir áfrýjuðu dómum sínum. Dómi samverkamannsins var breytt í fjögur og hálft ár, en dómur Lárusar staðfestur. Lárus hafði búið í Danmörku frá barnaskólaaldri, en fram kom í dómnum að honum skyldi vísað úr landi að afplánun lokinni.
Í fyrra var Gunnar Jóhann Gunnarsson dæmdur fyrir að verða hálfbróður sínum, Gísla Þór Þórarinssyni, að bana í bænum Mehamn í Noregi. Hann fékk þrettán ára fangelsisdóm, sem var svo mildaður í fimm ár.
Gunnar skaut bróður sinn í lærið. Þegar lögregla kom á vettvang glæpsins var hann enn á lífi, en ekki tókst að bjarga honum. Gunnar vildi meina að um slys hafi verið að ræða. Hann hafi komið með haglabyssu á heimili bróður síns til þess að hræða hann, en endað á því að verða honum að bana eftir að kom til átaka á milli þeirra.
Um er að ræða mikinn fjölskylduharmleik. Ekki nóg með skyldleika gerandans og fórnarlambsins, heldur var barnsmóðir Gunnars í ástarsambandi með Gísla. Það reitti Gunnar til reiði sem hótaði þeim meðal annars lífláti. Nokkrum dögum fyrir morðið á Gísla var Gunnar úrskurðaður í nálgunarbann.
Gunnar Jóhann á sér langan sakaferil að baki hérlendis. Hann hefur verið dæmdur fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot, þjófnað og vopnalagabrot. Þá var hann dæmdur fyrir nauðgun árið 2002, fyrir stórfellda líkamsárás 2007 og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu og rán árið 2010.
Hinn hálfíslenski Brandon Richmond var árið 2012 dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bretlandi fyrir að hafa orðið sextán ára pilti að bana með því að stinga hann í hjartað. Glæpurinn var framinn í Bretlandi.
Brandon var aðeins tólf ára gamall þegar dómurinn féll en hann framdi framdi hann í slagtogi við fjóra eldri unglingspilta.
Samkvæmt skilyrðum dómsins á hann rétt á reynslulausn á næsta ári. Kristján Jóhann Matthíasson, faðir Brandons, opnaði sig um málið í viðtali við DV í fyrra. Hægt er að lesa um það hér.