fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
433Sport

Englendingar í úrslit EM í fyrsta sinn

Ísak Gabríel Regal
Miðvikudaginn 7. júlí 2021 21:36

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Englendingar eru komnir í úrslit Evrópumótsins í fótbolta í fyrsta sinn eftir spennandi leik á Wembley vellinum í London í kvöld.

Mikkel Damsgaard kom Dönum yfir á 30. mínútu með frábæru marki úr aukaspyrnu. Það tók Englendinga ekki langan tíma að jafna metin þegar að Simon Kjaer, fyrirliði Dana, setti boltann í eigið net eftir fyrirgjöf frá Bukayo Saka níu mínútum síðar.

Staðan var 1-1 í hálfleik og mikil spenna í loftinu.

Bæði lið héldu áfram að sækja í seinni hálfleik en Englendingar réðu lögum og lofum allt frá 70. mínútu eða svo. Þeim tókst þó ekki að skora í venjulegum leiktíma og tók framlenging við.

Danir voru augsýnilega farnir að þreytast og ekki bætti úr skák þegar að Jack Grealish og Phil Foden komu inn á fyrir Englendinga. Heimamenn fengu víti á á 102. mínútu þegar að Joakim Maehle braut á Raheem Sterling í teignum. Danir voru ósáttir við dóminn og var atvikið skoðað í VAR herberginu en vítið stóð. Harry Kane tók spyrnuna og Kasper Schmeichel varði frábærlega frá honum áður en Kane fylgdi spyrnunni eftir og kom Englendingum í 2-1 og þar við sat.

Englendingar mæta því Ítölum í úrslitaleiknum á sunnudaginn kemur.

England 2 – 1 Danmörk

0-1 Damsgaard (’30)
1-1 Kjaer (sjálfsmark)  (’39)
2-1 Kane (‘104)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Orðaður við bæði United og Liverpool sem gætu tekið slaginn

Orðaður við bæði United og Liverpool sem gætu tekið slaginn
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Davíð Þór tjáir sig um óvænt skipti Kára – „Þegar sú er ekki raunin er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið“

Davíð Þór tjáir sig um óvænt skipti Kára – „Þegar sú er ekki raunin er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Kári sagður hafa skrifað undir í Laugardal á nýjan leik

Kári sagður hafa skrifað undir í Laugardal á nýjan leik
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Real Madrid ekki bara að skoða Mourinho

Real Madrid ekki bara að skoða Mourinho
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Mikil reiði í höfuðborginni eftir að þessar myndir birtust um helgina

Mikil reiði í höfuðborginni eftir að þessar myndir birtust um helgina
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir gærkvöldið – Stuðningsmenn Arsenal verða með taugarnar þandar

Ofurtölvan stokkar spilin eftir gærkvöldið – Stuðningsmenn Arsenal verða með taugarnar þandar