fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
433Sport

Guardiola segir Man City hvorki eiga efni á Kane né Haaland „Við erum ekki að fara að kaupa neina framherja á þessu verði.“

Ísak Gabríel Regal
Miðvikudaginn 7. júlí 2021 20:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pep Guardiola þjálfari Manchester City segir félagið hvorki hafa efni á að kaupa Harry Kane né Erling Haaland í sumar.  City hafa verið mikið orðaðir við Kane undanfarið en Tottenham höfnuðu 100 milljóna punda boði í leikmanninn á dögunum. Þeir bláklæddu eru einnig sagðir hafa áhuga á Erling Haaland en stjórn félagsins eru að leita að arftaka Sergio Aguero sem yfirgaf félagið í sumar og gekk til liðs við Barcelona.

Guardiola sagði í viðtali við Katalónsku sjónvarpsstöðina TV3 að það væri ómögulegt að kaupa framherja til að ganga í stað Aguero vegna áhrifa Covid faraldursins á fjárhagsstöðu félagsins.

Við erum ekki að fara að kaupa neina framherja á þessu verði. Það er ómögulegt, við höfum ekki efni á því,“ sagði hann.

Öll félög eru í basli fjárhagslega, við erum engin undantekning. Við erum með Gabriel Jesus og Ferran Torres sem hafa verið frábærir í þessari stöðu. Við erum með frábæra leikmenn í akademíunni og höfum oft spilað með falska níu. Það er ólíklegt að við kaupum framherja í sumar.

Heimildir Sportsmail herma að City séu líklegir til að lenda Jack Grealish frá Aston Villa fyrir 100 milljónir punda um leið og þátttöku hans á EM 2020 með ensku landsliðinu lýkur.

Manchester City hefja titilvörnina á heimavelli Tottenham í London þann 15. ágúst og verður þá spennandi að sjá með hvoru liðinu Harry Kane leikur.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Orðaður við bæði United og Liverpool sem gætu tekið slaginn

Orðaður við bæði United og Liverpool sem gætu tekið slaginn
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Davíð Þór tjáir sig um óvænt skipti Kára – „Þegar sú er ekki raunin er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið“

Davíð Þór tjáir sig um óvænt skipti Kára – „Þegar sú er ekki raunin er betra að leikmaðurinn finni sér nýtt lið“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Kári sagður hafa skrifað undir í Laugardal á nýjan leik

Kári sagður hafa skrifað undir í Laugardal á nýjan leik
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Real Madrid ekki bara að skoða Mourinho

Real Madrid ekki bara að skoða Mourinho
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Mikil reiði í höfuðborginni eftir að þessar myndir birtust um helgina

Mikil reiði í höfuðborginni eftir að þessar myndir birtust um helgina
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin eftir gærkvöldið – Stuðningsmenn Arsenal verða með taugarnar þandar

Ofurtölvan stokkar spilin eftir gærkvöldið – Stuðningsmenn Arsenal verða með taugarnar þandar