fbpx
Miðvikudagur 09.júlí 2025
433Sport

Full kista af gulli í boði fyrir Gylfa í Sádí-Arabíu – Þetta er hann sagður þéna í dag

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 24. júní 2021 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Al-Hilal hefur mikinn áhuga á því að krækja í Gylfa Þór Sigurðsson leikmann Everton í sumar. Samkvæmt erlendum miðlum hefur Al-Hilal haft samband við Everton með það fyrir auga að kaupa Gylfa.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem félag frá Sádí-Arabíu reynir að fá Gylfa en það kom einnig upp síðasta sumar. Talsvert var rætt og ritað um framtíð Gylfa Þórs hjá Everton fyrir ári síðan, hann íhugaði aldrei að fara og Everton var ekki með nein plön um að selja hann. „Það kom þannig séð aldrei neitt upp, aldrei frá mér og aldrei frá liðinu. Ég vissi af einhverjum áhuga hér og þar, það var ekki í plönunum hjá mér eða Everton,“ sagði Gylfi Þór í samtali við 433.is á þeim tíma.

Erlendir miðarl hafa sagt frá tilboði sem Gylfi fékk frá Sádí Arabíu fyrir ári síðan, þar er vel borgað en það heillaði ekki Gylfa. „Nei, ég var ekkert að fara þangað,“ sagði Gylfi fyrir ári síðan í viðtali við 433.is.

Ljóst er að Gylfi sem er sagður þéna 850 milljónir á ári hjá Everton getur fengið ríflega launahækkun hjá Al-Hilal. Tyrk­neski blaðamaður­inn Ekrem Kon­ur fjallar um málið og segir að ekki sé talið líklegt að Gylfi vilji fara til Sádí-Arabíu á þessum tímapunkti.

Gylfi er á leið inn í sitt fimmta tímabil með Everton en rætt hefur verið um að Everton framlengi samning Gylfa sem er 31 árs gamall.

Það er þekkt stærð að leikmenn á seinni árum ferilsins fari í minni deildir þar sem miklir fjármunir eru í gangi en Bafétimbi Gomis fyrrum framherji Gylfa hjá Swansea er í herbúðum Al-Hilal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Chelsea mætir Real eða PSG

Chelsea mætir Real eða PSG
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ísak Snær á leið til Danmerkur

Ísak Snær á leið til Danmerkur
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Segir að Maignan hafi tekið ákvörðun sjálfur

Segir að Maignan hafi tekið ákvörðun sjálfur
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Deco vorkennir fyrrum leikmanni Barcelona – Seldur eftir rúmlega eitt ár

Deco vorkennir fyrrum leikmanni Barcelona – Seldur eftir rúmlega eitt ár
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Staðfesta komu Edu sem mun sjá um öll félögin

Staðfesta komu Edu sem mun sjá um öll félögin
433Sport
Í gær

Bjarni fer yfir vonbrigðin og framhaldið – Hlustaðu á þáttinn hér

Bjarni fer yfir vonbrigðin og framhaldið – Hlustaðu á þáttinn hér
433Sport
Í gær

Staðfesta kaup á íslenska landsliðsmanninum – Kristian gerir fjögurra ára samning

Staðfesta kaup á íslenska landsliðsmanninum – Kristian gerir fjögurra ára samning