fbpx
Þriðjudagur 04.nóvember 2025
Fréttir

Bjóða þeim sem hafa veikst af COVID-19 bólusetningu

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 21. júní 2021 08:00

Bólusetning með Pfizer bóluefni í Laugardalshöll Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hér á landi verður þeim sem hafa veikst af COVID-19 boðið upp á bólusetningu gegn sjúkdómnum. Magnús Gottfreðsson, sérfræðingur í smitsjúkdómum á Landspítalanum og prófessor við Háskóla Íslands, segir að það sé skynsamleg varúðarráðstöfun að bólusetja þá sem hafa sýkst.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Magnúsi að langvarandi vörn gegn endursýkingu af COVID-19 hafi verið talsvert rannsökuð hér á landi. Fyrstu niðurstöður slíkrar rannsóknar voru birtar í október í New England Journal of Medicine. Sú rannsókn er enn í gangi en hún byggist á mótefnamælingum hjá rúmlega 30.000 manns hér á landi. „Þær niðurstöður sýndu að mótefnasvarið var almennt séð mjög gott og virtist vera meira langvarandi en fólk hafði áhyggjur af í byrjun. Síðan mun tíminn leiða í ljós hversu löng vörnin er. Það er náttúrlega bara eitt og hálft ár síðan fyrstu sjúklingarnir smituðust þannig að það tekur auðvitað tíma að átta sig á því hvernig þetta þróast,“ er haft eftir Magnúsi.

Hann sagði að mótefnasvar gegn broddprótíninu virðist vera öflugra hjá þeim sem eru bólusettir en hjá þeim sem hafa fengið náttúrulega sýkingu. Það sé ástæðan fyrir að mælt sé með örvunarskammti af bóluefni fyrir þá sem hafa fengið COVID-19. Hann benti einnig á að ekki liggi fyllilega fyrir hver mótefnavörnin verður eftir lengri tíma. „Það náttúrlega skiptir líka máli að við náttúrulega sýkingu myndar líkaminn mótefni gegn fleiri þáttum veirunnar, ekki bara gegn broddprótíninu þannig að það verður svokallað samsett mótefnasvar, alls konar mótefni sem myndast,“ er haft eftir honum. Hann benti einnig á að ekki sé hægt að stilla þessu upp og mæla magn mótefna gegn broddprótíninu annars vegar eftir náttúrulega sýkingu og hins vegar eftir bólusetningu, málið sé aðeins flóknara en það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

„Þetta endar oft þannig að þegar barnið er orðið fullorðið þá er foreldrið orðið öryrki“

„Þetta endar oft þannig að þegar barnið er orðið fullorðið þá er foreldrið orðið öryrki“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Var sá eini sem komst lífs af úr flugslysinu – Svona er staðan fimm mánuðum síðar

Var sá eini sem komst lífs af úr flugslysinu – Svona er staðan fimm mánuðum síðar
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Varpa ljósi á hnífamanninn: „Djöfullinn mun ekki sigra“

Varpa ljósi á hnífamanninn: „Djöfullinn mun ekki sigra“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fiskabúr sprakk á veitingastað og lifandi fiskar út um allt

Fiskabúr sprakk á veitingastað og lifandi fiskar út um allt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigurður Árni: „Hvernig getur barn sem hefur verið barið svona illa, varið þann sem barði það?“

Sigurður Árni: „Hvernig getur barn sem hefur verið barið svona illa, varið þann sem barði það?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglumaður á vakt í Eyjum skipti sér af ágreiningi sem var ekki lögreglumál – Persónulega tengdur öðrum aðilanum

Lögreglumaður á vakt í Eyjum skipti sér af ágreiningi sem var ekki lögreglumál – Persónulega tengdur öðrum aðilanum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan leitar að þessu fólki

Lögreglan leitar að þessu fólki