fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Veikur sjómaður lagði Brim – Sögðu veikindin stafa af vímuefnaneyslu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 2. febrúar 2021 16:54

Guðmundur Kristjánsson var endurráðinn forstjóri Brims 28. janúar. Skjáskot RÚV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjómaður sem kom óvinnufær í land eftir veiðiferð í byrjun mars árið 2019 og bað um tveggja mánaða veikindaleyfi, stefndi Brim hf um vangoldin staðgengilslaun í tvo mánuði.

Veikindin voru af andlegum toga. Brim taldi manninn ekki eiga rétt á launum þar sem hann hefði ekki tímanlega tilkynnt um veikindin og framvísað læknisvottorði. Þá kom í ljós að í mánuðina tvo var hann í vímuefnameðferð í Svíþjóð. Málsrök Brims voru þríþætt:

Í fyrsta lagi sé neysla áfengis og/eða vímuefna  og vandi einstaklinga sem af slíkri neyslu stafar ekki sjúkdómur í skilningi vinnuréttar. Fíknmeðferð skapi ekki rétt til greiðslu veikindalauna.

Í öðru lagi hafi sjómaðurinn vanrækt skyldu sína til að tilkynna Brim um að hann væri óvinnufær vegna sjúkdóms í skilningi vinnuréttar í upphafi veikindadaganna.

Í þriðja lagi hafi Brim ekki haft hugmynd um að maðurinn væri óvinnufær fyrr en í júní 2019 en vottorðið sem þá var lagt fram hafi verið útgefið 8. apríl, rúmlega mánuði eftir að maðurinn taldist óvinnufær.

Kvíði og þunglyndi

Það réð líklega úrslitum um niðurstöðu dómsins að læknisvottorð og framburður læknis fyrir dómi staðfestu að veikindi mannsins voru af andlegum toga en ekki fíkn. Hann þjáðist af þunglyndi og kvíða. Neyslan kom í kjölfarið og hann sótti meðferð á veikindatímanum. Um þetta segir í dómnum:

„Bar læknirinn fyrir dómi að stefnandi hefði „gefist upp“ á sjónum og verið orðinn óvinnufær þegar í land var komið 4. mars 2019. Þá kom fram að stefnandi hefði leiðst út í fíkniefnaneyslu og síðan leitað meðferðar í Svíþjóð. Skýrt kom þó fram í máli læknisins að orsök óvinnufærni stefnanda væri að rekja til þunglyndis og kvíða.“

Meiri þótti vera til í þeim fullyrðingum Brims að sjómaðurinn hefði vanrækt tilkynningaskyldu sína um veikindin, en dómurinn horfði hins vegar til sérstöðu andlegra veikinda sem orsakavald um slíkt framtaksleysi. „Sjálfur lýsti stefnandi því fyrir dómi að hann hefði verið langt niðri, þungur og ekki séð neitt ljós í lífinu,“ segir í dómnum. Þá segir einnig:

„Þá liggur fyrir að stuttu áður hafði slitnað upp úr sambandi stefnanda við barnsmóður hans, en um það var skipstjóra og stýrimanni á skipinu kunnugt. Að öllum atvikum málsins virtum telur dómurinn að tilkynning stefnanda til stefnda hafi ekki verið svo síðbúin að varðað gæti hann þeim réttarspjöllum að firra hann lög- og kjarasamningsbundnum rétti til veikindalauna í tvo mánuði.“

Brim hélt því líka fram að sjómaðurinn hefði ekki gefið upplýsingar um heilsufarssögu sína þegar hann réð sig til fyrirtækisins en gögn þóttu sanna að hann hefði greint trúnaðarlækni frá geðrænum vandamálum og misnotkun áfengis og fíkniefna.
Sjómaðurinn hafði fullan sigur í málinu og var Brim hf. dæmt til að greiða honum rúmlega 3,7 milljónir með dráttarvöxkum og 950.000 í málskostnað.
Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, 2. febrúar.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Niðurstöður kosningaprófs Viðskiptaráðs – Þetta eru málin sem njóta mests stuðnings

Niðurstöður kosningaprófs Viðskiptaráðs – Þetta eru málin sem njóta mests stuðnings
Fréttir
Í gær

Sverrir Helgason flutti ræðu hjá Miðflokksmönnum – Hefur kallað regnbogafánann „alnæmisfánann“

Sverrir Helgason flutti ræðu hjá Miðflokksmönnum – Hefur kallað regnbogafánann „alnæmisfánann“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bjarni reyndi að hjóla með ruslið í Sorpu – Fékk skell þegar hann kom á áfangastað

Bjarni reyndi að hjóla með ruslið í Sorpu – Fékk skell þegar hann kom á áfangastað