

Stórsýningunni Verk og vit, sem halda átti í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal 15.-18. apríl, hefur verið frestað um ár eða til 17.-20. mars 2022. Verk og vit hefur skipað sér sess sem mikilvægur vettvangur fyrir bygginga- og mannvirkjageirann en á síðustu Verk og vit sýningu sem haldin var 2018 var sett aðsóknarmet en þá sóttu um 25.000 manns sýninguna þar sem yfir hundrað sýnendur kynntu vörur sínar og þjónustu.
Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdastjóri AP almannatengsla sem er framkvæmdaaðili Verk og vit, segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin að höfðu samráði við samstarfsaðila. Enn eru samkomutakmarkanir sem miða við að ekki megi fleiri en 20 koma saman. Í ljósi þess að samkomutakmarkanir gætu orðið viðvarandi næstu mánuði var ákveðið að fresta sýningunni um ár eða til 17.-20. mars 2022. Hún segist sannfærð um að sýningin Verk og vit 2022 muni verða ein sú mikilvægasta hingað til enda verði þá góður tími til að sækja fram og þétta raðirnar. Þetta kom fram í tilkynningu sem send var á fjölmiðla.
Meðal sýnenda á Verk og vit eru meðal annars byggingarverktakar, verkfræðistofur, menntastofnanir, fjármála- og ráðgjafafyrirtæki, tækjaleigur, hugbúnaðarfyrirtæki og sveitarfélög.