fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Margir minnast Svavars: „Mikið sem ég á eft­ir að sakna hans“ – „Ef ég reyni að skrifa um hann gæti ég aldrei hætt“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 2. febrúar 2021 12:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svavar Gestsson, fyrrum ritstjóri Þjóðviljans, formaður Alþýðubandalagsins, þingmaður, ráðherra og sendiherra lést þann 18. janúar síðastliðinn. Útför hans fer fram í dag en henni verður streymt í beinni útsendingu kl. 13:00. Eftirlifandi eiginkona Svavars er Guðrún Ágústsdóttir, fyrrum forseti borgarstjórnar Reykjavíkur. Börn Svavars eru Svandís, Benedikt og Gestur og stjúpbörn hans eru Ragnheiður, Árni og Gunnhildur.

Fjölmargir minnast Svavars í Morgunblaðinu í dag en minningargreinarnar spanna 6 blaðsíður af sögum og minningum um Svavar. Fjölskylda Svavars og margir af helstu ráðamönnum Íslands, bæði núverandi og fyrrverandi, minnast hans í blaðinu.

„Það var gæfa fyrir okkur öll að fá að eiga með honum samleið“

Svandís Svavarsdóttir, dóttir Svavars og heilbrigðisráðherra, er ekki á meðal þeirra sem skrifar minningargrein um Svavar en hún útskýrir ástæðuna á Facebook-síðu sinni í dag. „Ef ég reyni að skrifa um hann gæti ég aldrei hætt,“ segir hún og deilir þá grein sem Torfi Hjartarson, eiginmaður hennar og lektor, skrifaði en grein hans var birt í Morgunblaðinu.

„Svavari á ég mikið upp að unna og þegar hann kveður finn ég fyrir þakklæti sem minnir helst á djúpan og tæran hyl eða ægibjarta víðáttuna í Hólaseli við Króksfjörð, þar sem augað þreytist aldrei á að finna nýja og töfrandi hluti,“ segir Torfi. „Ég hreifst af honum ungur eins og svo margir af minni kynslóð og varð einarður vinstrimaður á unglingsaldri en vissi ekki þá að leiðir okkar ættu eftir að liggja saman löngu síðar og það með jafn afgerandi hætti og raunin varð!“

Torfi segir að Svavar hafi ekki einungis verið afreksmaður og hetja í stjórnmálum sem barðist fyrir betra samfélagi alla sína ævi. „Hann átti líka fjölskyldu sem ég var svo gæfusamur að fá að tengjast. Hann var fátækur sveitastrákur úr stórum systkinahópi, elstur í hópnum og ræktaði öll sín fjölskyldutengsl af kostgæfni allt til loka, kvæntist Nínu okkar ungur og Guðrúnu okkar síðar, átti börn og buru, tengdabörn og stjúpbörn, barnabörn og barnabarnabörn. Yngst í þeim stóra hópi er hún Nótt sem fæddist í svartasta skammdeginu fyrir rúmu ári síðan og hlær nú við lífinu með tveimur stórum framtönnum og ómótstæðilegu brosi.“

Torfi minnist samverustundanna með Svavari og segir þær hafa verið svo margar og góðar að engri tölu verður á þær komið. „Mér fannst líka gott að sjá hvernig hann mildaðist með árunum, ekki í pólitískri sýn, heldur æðruleysi og sátt við sjálfan sig og lífshlaupið, það skipti hann máli hvernig hans yrði minnst, að segja sögu sína, heimahaganna og samtímans með sínum hætti og það tókst honum líka með svo mörgu móti áður en yfir lauk,“ segir hann.

„Og gafst ekki upp fyrr en í fulla hnefana, barðist við dauðann eins og hetja í fornum sögum, það var fullt tungl þegar hann hneig niður á leið vestur í Dali og Reykhólasveit í byrjun október og úlfatungl á björtum vetrarmorgni þegar við lögðum hann í kistuna, næstum fjórum mánuðum síðar. Við söknum hans öll sárt og mikið en eigum líka mikið að þakka. Svavar var einstakur gæfumaður og það var gæfa fyrir okkur öll að fá að eiga með honum samleið.“

„Eng­um lík­ur. Ein­stak­ur“

Eins og fyrr segir skrifuðu fjölmargir ráðamenn minningargreinar um Svavar. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti Íslands, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi ráðherra, Guðni Ágústsson, þingmaður og fyrrum formaður Framsóknar, Helgi Bernódusson, fyrrum skrifstofustjóri Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon, fyrrum þingmaður og formaður Vinstri grænna, Helgi Hjörvar, fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar, Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, og margir aðrir eru á meðal þeirra sem minnast hans í blaðinu.

Kolbeinn Óttarsson Proppé segir að með Svavari sé geng­inn einn af stóru leik­end­un­um í ís­lensk­um stjórn­mál­um. „Eft­ir hann liggja ótal­mörg og góð verk sem hafa gert sam­fé­lagið betra. Fyr­ir mér er fall­in frá fyr­ir­mynd og vin­ur. Mikið sem ég á eft­ir að sakna hans.“

„Minn­ing lif­ir um mann sem fyrst og fremst vildi gera gagn fyr­ir sam­fé­lag sitt sem og heim­inn all­an,“ skrifaði Katrín Jakobsdóttir ásamt eiginmanni sínum, Gunnari Sigvaldasyni. „Frá­sagn­ir um ævi­fer­il ná ekki að fanga geislandi sjarma bar­áttu­manns, leiftrandi til­svör og glampa í aug­um, kímn­ina sem oft breytti spennu í óvænta gleði. Í vit­und fé­lag­anna var Svavar fyrst og fremst heill­andi. Eng­um lík­ur. Ein­stak­ur,“ skrifaði Ólafur Ragnar.

Hér er hægt að horfa á beina útsendingu útfararinnar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík og hefst klukkan 13:00.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Niðurstöður kosningaprófs Viðskiptaráðs – Þetta eru málin sem njóta mests stuðnings

Niðurstöður kosningaprófs Viðskiptaráðs – Þetta eru málin sem njóta mests stuðnings
Fréttir
Í gær

Sverrir Helgason flutti ræðu hjá Miðflokksmönnum – Hefur kallað regnbogafánann „alnæmisfánann“

Sverrir Helgason flutti ræðu hjá Miðflokksmönnum – Hefur kallað regnbogafánann „alnæmisfánann“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bjarni reyndi að hjóla með ruslið í Sorpu – Fékk skell þegar hann kom á áfangastað

Bjarni reyndi að hjóla með ruslið í Sorpu – Fékk skell þegar hann kom á áfangastað