fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Þrír framsóknarmenn vilja aukið frelsi í áfengismálum

Heimir Hannesson
Þriðjudaginn 2. febrúar 2021 15:58

mynd/samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrír þingmenn Framsóknarflokksins, þeir Þórarinn Ingi Pétursson, Silja Dögg Gunnarsdóttir og Halla Signý Kristjánsdóttir hafa lagt fram frumvarp sem miðar að því að fjölga leyfðum smásölustöðum áfengis á Íslandi þannig að örbrugghúsum yrði leyft að selja sína eigin framleiðslu á framleiðslustað. Þá veitir frumvarpið smærri framleiðendum áfengis á Íslandi afslætti af áfengisgjaldi til þess að stuðla að lægri framleiðslukostnaði og þannig að lægra verði á innlendum áfengisvörum til neytenda, að því er segir í frumvarpinu. Sala á áfengum drykkjum á framleiðslustað yrði háð leyfi heilbrigðiseftirlitsins eins og sala annarra matvæla.

Málið er keimlíkt frumvarpi sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og dómsmálaráðherra, og nokkrir samflokksmenn hennar í gegnum tíðina hafa ítrekað lagt fram. Það frumvarp tók reyndar til frjálsrar sölu áfengis á internetinu, en frumvarp Framsóknarmannanna snertir ekkert á slíku.

Framsóknarflokkurinn hefur hingað til þótt heldur íhaldssamur er kemur að þessum málum. Meira að segja ungliðahreyfing flokksins hefur í gegnum árin talað gegn auknu frelsi á áfengismarkaði hér á landi. Í greinargerð með frumvarpinu nú segir meðal annars:

Með þessu er greitt fyrir auknum atvinnutækifærum sem og meira frelsi á áfengismarkaði hér á landi. Einnig stuðlar frumvarpið að auknu vöruúrvali fyrir neytendur og hagstæðara verði á innlendum áfengisvörum til neytenda. Þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu ættu að vera til hagsbóta fyrir bæði smærri innlenda áfengisframleiðendur sem og neytendur. Það er mikilvægt að örva innlenda framleiðslu á sífellt alþjóðlegri markaði þar sem vörur frá öllum ríkjum heims hafa greiðan aðgang að innlendum markaði, sem gerir smærri innlendri áfengisframleiðsluaðilum erfitt fyrir í rekstri sínum ásamt fyrrgreindri stöðu þeirra á markaðinum.

Aðspurð hvort um væri að ræða meiriháttar stefnubreytingu hjá Framsókn sagði Silja Dögg svo ekki vera. Þess heldur væri Framsókn þarna að rækta sínar skyldur gagnvart innlendum matvælaframleiðendum og benti á að brugghúsin „heima í héraði,“ væru svo miklu meira en bara áfengisframleiðandi. „Þessi brugghús styðja mjög ríkulega við annars konar þjónustu og iðnað á sínum svæðum. Þau kaupa vörur og önnur matvæli af bændum og framleiðendum þar heima og framleiða úr henni verðmæta vöru,“ sagði Silja. „Sem fyrr leggjum við hjá Framsókn áherslu á lýðheilsu. Framsóknarflokkurinn hefur alltaf talað fyrir lýðheilsu og fyrir forvarnarstarfi.“ Silja segir lýðheilsuvinkil á áfengismál sem hingað til hafa verið rædd á þinginu að mestu snúast um aukið aðgengi en það eigi ekki við hér. „Ég sé ekki að þarna verði um stóraukið aðgengi að áfengi að ræða. Við erum enn alfarið á móti því að selja áfengi í matvöruverslunum, til dæmis.“

Silja segist vongóð um að frumvarpið fái umræðu á þinginu. „Þetta tengist auðvitað að hluta málinu sem Áslaug Arna hefur áður lagt fram um brugghúsin. Það sem við erum með nýtt í þessu frumvarpi er að hámarksframleiðslan er aukin svo að það nái til allra örbrugghúsa á landinu, og svo leggjum við til að afslættir séu veittir á áfengisgjaldinu til smærri brugghúsa.“

„Við horfum á þetta mál sem atvinnusköpun,“ útskýrir Silja að lokum. „Þarna erum við með litla framleiðendur sem myndu geta selt sína framleiðslu beint til neytenda og haldið þannig áfram að skapa störf og tækifæri með nýsköpun og innlendri framleiðslu heima í héraði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Niðurstöður kosningaprófs Viðskiptaráðs – Þetta eru málin sem njóta mests stuðnings

Niðurstöður kosningaprófs Viðskiptaráðs – Þetta eru málin sem njóta mests stuðnings
Fréttir
Í gær

Sverrir Helgason flutti ræðu hjá Miðflokksmönnum – Hefur kallað regnbogafánann „alnæmisfánann“

Sverrir Helgason flutti ræðu hjá Miðflokksmönnum – Hefur kallað regnbogafánann „alnæmisfánann“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bjarni reyndi að hjóla með ruslið í Sorpu – Fékk skell þegar hann kom á áfangastað

Bjarni reyndi að hjóla með ruslið í Sorpu – Fékk skell þegar hann kom á áfangastað