

Fjórir ökumenn voru handteknir á vaktinni, grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna. Einn þeirra hafði ekið á vegrið og umferðarljós áður en hann var handtekinn. Hann er nú í fangageymslu.
Margar tilkynningar bárust um eld í flugeldum, brennur og eld í ruslagámum. Tjón var minniháttar og brennumálin reyndust minniháttar og brennugestir flestir farnir á brott þegar lögreglan kom á vettvang.
Á fyrsta tímanum í nótt hringdi maður í lögregluna og sagðist vera eftirlýstur. Það reyndist hann vera og var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar máls.
Í austurborginni réðust nokkrir menn á einn. Þeir voru handteknir nærri vettvangi. Málið er til rannsóknar.
Um klukkan fjögur vildi hópur fólks komast í partí á hóteli í miðborginni. Hámarksfjöldi var í herberginu að sögn hótelstarfsmanna og þurftu gestirnir því frá að hverfa.
Á fjórða tímanum voru tveir handteknir eftir slagsmál í fjölbýlishúsi. Annar þeirra þarfnaðist aðhlynningar á slysadeild eftir átökin.
Á sjöunda tímanum var tilkynnt um mann liggjandi í snjóskafli. Tilkynnandi kannaði með ástand mannsins sem fældist við það og hljóp á brott. Meira var ekki aðhafst í málinu enda maðurinn ekki borin neinum sökum.