fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Pressan

Skelfilegt blóðbað – Myrti tvær konur á einni og hálfri klukkustund

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 2. desember 2020 07:00

Mynd úr safni. Mynd: EPA-EFE/Henning Bagger DENMARK OUT

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég vil gefa mig fram. Ég er nýbúinn að myrða unnustu mína,“ sagði skjálfandi karlmannsrödd sem hringdi í neyðarlínuna snemma að morgni 15. nóvember á síðasta ári. En ekki nóg með það því maðurinn myrti einnig fyrrum unnustu sína 82 mínútum síðar.

Þetta gerðist í Ruds Vedby og Kundby í Danmörku. Réttarhöld standa nú yfir í málinu. sakborningurinn, sem er fertugur, segist ekki muna neitt eftir þessari örlagaríku nótt þegar hann stakk unnustu sína 20 til 25 sinnum í Ruds Vedby og varð henni að bana. Að morðinu loknu fór hann heim til fyrrum unnustu sinnar í Kundby og stakk hana álíka oft og varð henni að bana.

Unnusta mannsins var 31 árs og fyrrum unnustan 35 ára.

Á föstudaginn var upptaka af samtali mannsins við neyðarlínuna spiluð fyrir dóminn. „Hvernig gat ég bara drepið hana? Ég skil það ekki, ég skil það ekki“ sagði hann grátandi í símann. Símtalið barst aðeins fimm mínútum eftir að maðurinn hafði bundið enda á líf unnustu sinnar. Hann sleit síðan samtalinu og ók heim til fyrrum unnustu sinnar og varð henni að bana.

Á leiðinni hringdi hann í bróður sinn og sagði honum frá morðinu og að það hafi komið honum á óvart hversu auðvelt það hafi verið að stinga hnífnum í hana. Bróðurnum tókst ekki að fá upp úr honum hvert hann væri að fara. Klukkan 05.47 hringdi maðurinn aftur í lögregluna og sagðist vera búinn að myrða fyrrum unnustu sína. „Ég var í Knudby og er búinn að gera út af við fyrrum unnustu mína,“ sagði hann. Lögreglunni tókst að halda honum í símanum og sannfæra hann um að aka að lögreglustöðinni í Holbæk þar sem hann var handtekinn klukkan 06.07 án þess að sýna mótspyrnu.

Maðurinn ber við algjöru minnisleysi og segir það hugsanlega stafa af mikilli amfetamínneyslu. Hann segist ekki muna neitt vikuna fyrir morðin og þar til hann rankaði við sér í fangelsi. Verjandi hans krefst sýknu og segir að maðurinn hafi ekki ætlað sér að myrða konurnar. Samt sem áður leikur enginn vafi á að hann hafi stungið þær báðar margoft.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna

Vilhjálmur prins sagður ætla að meina Harry bróður sínum að vera viðstaddur krýninguna
Pressan
Í gær

Þetta skaltu alltaf þrífa áður en þú flytur inn í nýtt hús

Þetta skaltu alltaf þrífa áður en þú flytur inn í nýtt hús
Pressan
Í gær

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972

Nokkrar ástæður þess að fólk hefur ekki stigið fæti á tunglið síðan 1972
Pressan
Í gær

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur

Vísindamaður aflífar mýtur um rottur