fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Pressan

Slæmt ástand í Stokkhólmi vegna COVID-19 – „Við höfum misst tökin á þessu“

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 3. nóvember 2020 06:50

COVID-19 sýni rannsökuð. Mynd:EPA-EFE/STEPHANIE LECOCQ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá því á föstudaginn fram á mánudag greindust rúmlega 3.000 íbúar í Stokkhólmi með kórónuveiruna sem veldur COVID-19. Þetta eru fleiri en greindust alla vikuna á undan. Á sama tíma fjölgaði sjúkrahúsinnlögnum vegna COVID-19 mikið. Þær voru 148 á föstudaginn en voru orðnar 203 í gær en þetta er 37% aukning.

Expressen skýrir frá þessu.

„Nú er þetta virkilega alvarlegt. Við höfum misst tökin. Við verðum að ná stjórn á þessu aftur,“

hefur blaðið eftir Björn Eriksson, forstjóra heilbrigðisstofnunar Stokkhólms.

Af þeim 203 sem lágu á sjúkrahúsi í gær voru 20 á gjörgæsludeild. Björn sagði að aukningu smita megi rekja til þess að íbúar í Stokkhólmi fylgi ekki nægilega vel leiðbeiningum yfirvalda um að halda góðri fjarlægð sín á milli og þvo sér um hendurnar.

„Við verðum að leggja aðeins meira á okkur en við gerum núna. Það gátum við í vor og við neyðumst til að gera það aftur,“

sagði Björn.

Í byrjun október lágu aðeins 30 COVID-19-sjúklingar á sjúkrahúsum í Stokkhólmi en allan mánuðinn fjölgaði smitum mikið.

Samkvæmt tölum frá í gær þá greindust 3.188 með kórónuveiruna í Svíþjóð sólarhringinn á undan. Í heildina hafa 124.355 greinst með veiruna í Svíþjóð frá upphafi heimsfaraldursins. Rúmlega 5.900 hafa látist.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 10 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 11 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman