fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Eyjan

Eldhúsdagsumræður – BEIN ÚTSENDING

Jón Þór Stefánsson
Þriðjudaginn 23. júní 2020 19:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi í kvöld. Þær hefjast klukkan 19:30, en umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Þingmenn Miðflokksins eru fyrstir á mælendaskrá í öllum umferðum í eldhúsdagsumræðunum á Alþingi í kvöld. Þingmaður utan flokka, Andrés Ingi Jónsson, talar í lok fyrstu umferðar.

Röð flokkanna verður annars þessi í öllum umferðum: Miðflokkurinn, Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn og Flokkur fólksins.

Fyrir Miðflokkinn tala Gunnar Bragi Sveinsson, 6. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Sigurður Páll Jónsson, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri og í þeirri þriðju Karl Gauti Hjaltason, 8. þm. Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Njáll Trausti Friðbertsson, 6. þm. Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð Vilhjálmur Árnason, 9. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Samfylkinguna tala í fyrstu umferð Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurkjördæmis, í annarri Ágúst Ólafur Ágústsson, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þeirri þriðju Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð tala Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 7. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ari Trausti Guðmundsson, 5. þm. Suðurkjördæmis, og í annarri og í þriðju umferð Rósa Björk Brynjólfsdóttir, 3. þm. Suðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Pírata eru í fyrstu umferð Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og Helgi Hrafn Gunnarsson, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju umferð.

Ræðumenn Framsóknarflokksins eru Líneik Anna Sævarsdóttir, 9. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Willum Þór Þórsson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri og í þriðju umferð Silja Dögg Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Viðreisn tala í fyrstu umferð Hanna Katrín Friðriksson, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Jón Steindór Valdimarsson, 13. þm. Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu og þriðju umferð en Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð.

Þingmaður utan flokka, Andrés Ingi Jónsson, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, talar í lok fyrstu umferðar.

Hér að neðan má sjá beina útsendingu frá Eldhúsdagsumræðunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Jón Gnarr spenntur fyrir málþófinu í dag – „Ég veit að það er mikil spenna yfir því að minnsta kosti innanhúss“

Jón Gnarr spenntur fyrir málþófinu í dag – „Ég veit að það er mikil spenna yfir því að minnsta kosti innanhúss“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Krónutjónið nemur 500 milljörðum árlega

Sigmundur Ernir skrifar: Krónutjónið nemur 500 milljörðum árlega
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Heillandi fól

Óttar Guðmundsson skrifar: Heillandi fól
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“