fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Eyjan

Björn Valur hafnar fimmflokkastjórninni

Trausti Salvar Kristjánsson
Laugardaginn 11. nóvember 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Valur Gíslason, Mynd/Pressphotos.biz

Björn Valur Gíslason, fyrrum varaformaður og þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs , segir á heimasíðu sinni í gær að hugmyndir forystufólks Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar um samstarf við VG og einn flokk til viðbótar, þá Miðflokkinn eða Flokk fólksins, séu óraunhæfar.

Björn Valur bendir á að samtals hefðu þessir fjórir flokkar 28 þingmenn og þyrftu því stuðning annars flokks en Framsóknarflokksins, sem hafi þegar hafnað samstarfi við umrædda flokka.

Þá segir Björn Valur:

„Ekki er hægt að gera ráð fyrir að allir flokkarnir gefi eftir öll helstu stefnumál sín. Þannig þyrfti ríkisstjórn þeirra að ráðast í breytingar á landbúnaðar- og sjávarútvegskerfinu, peningakerfinu, stjórnarskrá, gjaldmiðlamálum og fleiru slíku. Þetta yrði því eðli málsins vegna ríkisstjórn samfélagslegra átaka. Ég er ekki sannfærður um að það sé það sem fólk vilji endilega núna auk þess sem efast má um pólitíska styrkleika a.m.k. sumra þessara flokka til að knýja umdeild mál í gegnum þingið.“

Þá segir Björn Valur suma þessa flokka „félagslega veika“.

„Fyrir utan Samfylkinguna og Vinstri græn eru allir hinir flokkarnir félagslega veikir. Þeir hafa ekki yfir að ráða félagslegu neti flokks/eða stuðningsmanna um landið og bakland þeirra er afar veikt. Sumir þeirra eru lítið annað en hylkið utan um forystufólkið sem gerir þá afar brothætta í samstarfi.“

Þá segir Björn Valur í lok pistilsins, að niðurstaða þessara flokka sem ræddust við í gær, hafi verið á „misskilningi byggð“ og hugmyndir þeirra „óraunhæfar“.

Það má skilja á þessum orðum Björns Vals að Katrín Jakobsdóttir eigi ekki annan valkost, renni viðræður hennar við Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn í sandinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef

Samfylking, Viðreisn og óháðir á Seltjarnarnesi kynna stefnuskrá sína og opna nýjan vef
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Halla Hrund Logadóttir: Evrópusambandsaðild eykur líkur á vaxtalækkunum

Halla Hrund Logadóttir: Evrópusambandsaðild eykur líkur á vaxtalækkunum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Yfirþjóðlegt vald ESB