fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Óttast að ný bylgja COVID-19 sé skollin á í Kína

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 11. maí 2020 07:30

Kjötmarkaðurinn í Wuhan í Kína er talinn hafa verið uppspretta kórónuveirufaraldursins.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kínversk yfirvöld segja að 17 ný tilfelli kórónuveirunnar, sem veldur COVID-19 sjúkdómnum, hafi verið staðfest í landinu á laugardaginn. 10 hinna smituðu smituðust innanlands. Fimm þeirra í Wuhan þar sem talið er að veiran hafi átt upptök sín.

Samkvæmt frétt CNN þá var tilkynnt um fyrsta smittilfellið í einn mánuð í Wuhan í gær. Þetta vekur áhyggjur um að önnur bylgja faraldursins sé nú að skella á.

Í borginni Shulan í Jilin héraðinu greindust 11 smit á laugardaginn. Þar var strax gripið til ráðstafana og hömlur settar á líf íbúa. Veitingastöðum var lokað en þó er heimilt að selja mat til heimsendinga og sækninga. Almenningssamgöngur voru stöðvaðar sem og önnur opinber starfsemi.

Fólk má ekki safnast saman og aðeins einn úr hverri fjölskyldu má fara út til að versla hverju sinni. Ekki hefur verið gefið út hversu lengi þessar ráðstafanir eiga að gilda. Yfirvöld telja mikla hættu á að faraldur brjótist út í borginni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi
Pressan
Í gær

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“
Pressan
Í gær

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir