fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
433Sport

Vill hitamæla forsetann og það strax – ,,Hann er bilaður“

Victor Pálsson
Sunnudaginn 15. mars 2020 11:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dimitri Payet, stjarna Marseille, hefur svarað forseta Lyon, Jean-Michel Aulas sem er ansi umdeildur.

Aulas gaf frá sér stutta tilkynningu í gær þar sem hann bað franska knattspyrnusambandið að fella tímabilið niður í Frakklandi vegna kórónaveirunnar.

Payet telur að Aulas sé að reyna að bjarga eigin liði en Lyon situr í 7. sæti deildarinnar, 28 stigum á eftir toppliði PSG.

,,Er honum alvara þarna? Hann er bilaður! Það þarf að hitamæla hann og það strax!“ sagði Payet.

,,Hvernig lítur deildin út núna? Eru 28 leikir búnir? Ah ókei, nú skil ég þetta. Góð tilraun!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Opnar sig um meiðsli liðsfélagans – „Það er mikil blóðtaka fyrir okkur“

Opnar sig um meiðsli liðsfélagans – „Það er mikil blóðtaka fyrir okkur“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Davíð Smári: „Ég er ótrúlega stoltur og á engin orð“

Davíð Smári: „Ég er ótrúlega stoltur og á engin orð“