

Mohamed Salah ku vera hafa átt leynifund með fyrrverandi liðsfélaga sínum hjá Liverpool, Jordan Henderson, í London fyrr í vikunni, á sama tíma og vangaveltur fara vaxandi um framtíð Egyptans hjá félaginu.
Salah hefur verið í brennidepli undanfarna daga eftir harðorð viðtöl sem hann gaf fjölmiðlum í kjölfar 3-3 jafnteflis Liverpool gegn Leeds á laugardag.
Þar var hann skilinn eftir á bekknum og lét óánægju sína í ljós opinberlega. Hann sakaði félagið meðal annars um að hafa „kastað sér undir rútuna“ og sagðist ekki eiga neitt samband við nýjan knattspyrnustjóra liðsins, Arne Slot.
Þessi ummæli hafa kveikt orðróm um að Salah gæti yfirgefið Anfield í janúarglugganum. Hann hefur áður verið sterklega orðaður við félög í Sádi-Arabíu sem og í MLS-deildinni í Bandaríkjunum.
Á miðvikudag viðurkenndi yfirmaður sádiarabísku deildarinnar, Omar Mugharbel, að Salah væri skotmark stórliða þar í landi og daginn eftir talaði MLS-stjórinn Don Garber opinskátt um áhuga sinn á 33 ára sóknarmanninum.
Samkvæmt The Sun hittust Salah og Henderson á miðvikudag á ítölskum veitingastað í Chelsea í Vestur-London. Henderson lék stuttlega í Sádi-Arabíu með Al-Ettifaq og því þykir fundurinn líklegur til að ýta enn frekar undir sögusagnir.
Talið er að Salah hafi hlustað grannt á ráð fyrrum fyrirliða Liverpool, en þeir reyndu að láta lítið fyrir sér fara við komu sína á staðinn.