

Manchester United hefur birt rekstrarhagnað upp á 13,3 milljónir punda, merki um að endurskipulagning Ineos á félaginu sé farin að skila árangri.
Þrátt fyrir lægri tekjur af viðskiptasamningum, útsendingum og leikdögum, sem má rekja til þess að félagið spilaði ekki í Evrópukeppni á síðasta tímabili, hefur niðurskurður í starfsmannahaldi og almenn kostnaðarlækkun bætt stöðuna verulega.
Á sama tíma í fyrra skilaði félagið 6,9 milljóna punda tapi.
Lægri launakostnaður leikmanna og starfsfólks skilaði sér í auknum rekstrartekjum sem námu 26,9 milljónum punda.
Omar Berrada, stjórnarmaður United, sagði. „Þessar sterku fjárhagsniðurstöður sýna þrautseigju Manchester United á sama tíma og við erum að taka stór skref í umbreytingu félagsins.
„Erfiðar ákvarðanir síðasta árs hafa skilað varanlega lægri kostnaðargrunni og skilvirkara skipulagi sem gerir okkur kleift að bæta bæði íþrótta- og rekstrarárangur til lengri tíma. Það hefur jafnframt gert okkur kleift að fjárfesta í bæði kvenna- og karlaliðinu, sem nú eru í 3. og 6. sæti í deildunum.“