

FH og Þróttur hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Kára Kristjánssonar úr Þrótti í FH og gerir Kári fjögurra ára samning við FH.
Kári hefur verið besti leikmaður Þróttar síðustu ár.
Kári hefur verið einn allra besti leikmaður Lengjudeildarinnar undanfarin tvö tímabil og verið lykilmaður í Þróttaraliðinu sem var mjög nálægt því að tryggja sér sæti í efstu deild.
„Við höfum fylgst með Kára undanfarin misseri og þegar það var ljóst að Þróttur færi ekki upp í efstu deild varð það mögulegt fyrir okkur að ná í hann. Kári er virkilega góður fótboltamaður, góður á boltanum, les leikinn vel og er mikill liðsmaður. Við erum mjög ánægðir með að hafa náð að landa Kára og vitum að hann getur hjálpað okkur að ná okkar markmiðum.“ segir Davíð Þór við FH media.