

Auðmaðurinn Róbert Wessmann hefur afboðað komu sínu í hlaðvarpið Chess after Dark, ástæðan er sú að þeir félagar heimsóttu Albert Guðmundsson, landsliðsmann í knattspyrnu og leikmann Fiorentina.
Langt og ítarlegt viðtal við Albert var birt í gær af Chess after Dark sem tekið var upp í Flórens, þar fór Albert yfir feril sinn sem leikmaður en svaraði einnig fyrir dómsmál gegn sér. Albert var hreinsaður af ásökunum um kynferðisbrot á dögunum.
Róbert sem hefur í gegnum árin verið einn auðugasti maður landsins hefur áður mætt sem gestur í þáttinn hjá Chess after dark og ætlaði að mæta aftur. Hann afboðaði komu sína á Facebook síðu þáttarins í gærkvöldi.
Róbert setti ummælin inn á fimm mismunandi vegu og var reglulega að breyta þeim. Hann byrjaði á að tala um að Albert hefði borgað undir þá Birki Karl Sigurðsson og Leif Þorsteinsson sem stýra þættinum.
„Glataður þáttur… vona að þið séuð stoltir af boðsferðinni. Ég kemst ekki í þáttinn í næstu viku,“ skrifaði Róbert til að byrja með undir færslu CAD um þáttinn við Albert. Þessi ummæli Róberts féllu klukkan 23:41 í gærkvöldi. Í samtali við DV hafna Birkir og Leifur því að Albert hafi boðið þeim út eins og Róbert heldur fram.
Hann breytti svo ummælum sínum fjórum sinnum og endaði á að segja. „Glataður þáttur… Ég treysti mér ekki í þáttinn í næst viku eins og um var samið,“ skrifaði Róbert, forstjóri Alvotech að lokum en þetta skrifaði hann skömmu eftir miðnætti.

DV leitaði viðbragða hjá þeim Birki og Leifi sem stýra þættinum og segja þeir í skriflegu svari. „Okkur þykir það leiðinlegt að Róbert sem við vorum spenntir að ræða við sé svo misboðið að hann hætti við mætingu til okkar. Flestir sem hafa fylgst með hlaðvarpinu okkar síðustu fimm árin vita að viðtöl við okkar fremsta knattspyrnufólk hefur verið stór þáttur af dagskrágerðinni. Við höfum verið afar lánsamir að fá að heimsækja fjölmargar íslenskar stjörnur undanfarin ár. Það má segja að það hafi staðið til árum saman að setjast niður með Alberti og ræða feril hans og stöðu. Við töldum það þó ekki við hæfi á meðan þetta erfiða mál fór sína leið í gegnum réttarkerfið,“ segir í yfirlýsingu Chess after Dark.

Þeir segja það í takt við sína stefnu að þegar svona máli sé lokað sé eðlilegt að ræða við aðila. „Málinu er hins vegar lokið og í takt við okkar stefnu í dagskrárgerð tókum við viðtal við einn okkar fremsta knattspyrnumann og lífi hans sem stórstjarna í einni stærstu knattspyrnudeild heims. Í slíku viðtali væri beinlínis einkennilegt að spyrja ekki hvaða áhrif þetta mál hefur haft á knattspyrnuferil Alberts og hann svaraði því með sínum hætti. Við höfum fullan skilning á því að þetta er sorglegt og viðkvæmt mál sem bjó til sár sem munu eflaust seint gróa og tilfinningarnar eru sterkar. Við reyndum hins vegar að nálgast það af nærgætni og virðingu.“