
Karim Benzema segir í viðtali við L’Équipe að hann sé fullkomlega opinn fyrir að snúa aftur í franska landsliðið fyrir HM 2026.
Þrátt fyrir stormasama sögu með landsliðinu vegna mála utan vallar hefur framherjinn aldrei hafnað því að spila fyrir franska landsliðið og segir að ef kallið komi, þá mæti hann.
„Ég er fótboltamaður. Ef þeir kalla í mig kem ég og spila,“ segir Benzema.
Benzema er á mála hjá Al-Ittihad en á aðeins sex mánuði eftir af samningi sínum í Sádi-Arabíu og hefur þessi fyrrum leikmaður Real Madrid verið orðaður við endurkomu til Evrópu.