fbpx
Sunnudagur 25.janúar 2026
433Sport

Albert svarar fyrir stríðið við Arnar Þór og fræga Twitter færslu Eiðs Smára – „Það var raunin, hann gróf sína eigin gröf og rest in peace“

433
Föstudaginn 12. desember 2025 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það varð landsfrægt þegar Alberti Guðmundssyni var hent út úr íslenska landsliðinu í nokkra mánuði þegar Arnar Þór Viðarsson var þjálfari liðsins. Arnar taldi hugarfar Alberts ekki nógu gott og valdi hann ekki í landsliðið í nokkur skipti.

Mikið fjölmiðlafár skapaðist í kringum þetta en Albert var að standa sig vel með félagsliði. Málið sprakk í loft upp í mars árið 2023 þegar Guðmundur Benediktsson, faðir Alberts blandaði sér í leikinn með frægum pistli. Arnar Þór var rekinn úr starfi skömmu síðar.

„Ég þekkti Arnar ekki neitt og ég sá að Eiður væri með honum, ég held að hann hafi mætt í tíu ára afmælið mitt og ég var með stjörnur í augunum. Pabbi bauð honum sem leynigesti, ég var spenntur fyrir þessari ráðningu,“ segir Albert um þetta mál í hlaðvarpinu Chess after Dark.

Hann segir að strax í fyrsta glugga Arnars Þórs með liðið hafi hann verið hugsi. „Ég man alltaf eftir fyrsta glugganum hans Arnars, eigum Þýskaland úti og töpum stórt. Taktíkin var mjög skrýtin, þetta var fyrsti glugginn og menn ekki að ná því sem hann vildi gera. Síðan kemur næsti leikur í glugganum sem er tap gegn Armeníu.“

Getty Images

Eftir þann leik upplifir Albert að samband sitt og Arnars hafi súrnað og nefnir þar liðsfund. „Það er tekinn fundur eftir þann leik og ætli það séu ekki tíu klippur og átta af þeim eru um mig, bullandi neikvæðar. Ég er bara tekinn og étinn þarna, þá fann ég að það væri eitthvað ekki í lagi þarna. Sama með það, ég spilaði næstu tíu leiki samt undir Arnari. Þangað til að allt fór til suðurs.“

Eitt af því sem Albert var sakaður um var að vera ekki nógu gott hugfar. Einnig pirraði það Arnar Þór þegar Albert vildi fá að leggja það til að hann væri á miðjum vellinum en ekki sem kantmaður.

„Ég er ekki sammála því, mér finnst ég alltaf hafa verið gott viðhorf og hugarfar. Það nær enginn svona langt án þess að vera með gott hugarfar, en þessi gluggi sem þú ert að vitna. Við vorum búnir að spila einhverja 15 leiki með Arnari og gátum ekki neitt, ég gat ekkert. Ég var lélegur og liðið var lélegt, ég komst ekki inn í leikinn. Ég á spjall við Arnar og segist vilja hjálpa liðinu meira, ég segi að það sé með því að vera miðsvæðis. Hann vildi hafa mig á kantinum og að sleikja hliðarlínunni, hann var ekki sáttur með þetta innlegg mitt. Ég var að útskýra hvernig hann næði því besta úr mér. Hann sagði mér að hann sé þjálfarinn og að ég ætti einbeita mér að einhverju öðru, ég er á bekknum þarna úti á móti Ísrael og svo er heimaleikur eftir það og ég er á bekknum þar líka. Hann setur mig inn á 89 mínútu, ég skokka inná og skokka út af. Ég var þá helvíti pirraður, ég fer bara heim og hugsa ekki meira um þetta.“

Mynd: DV/KSJ

Eftir þetta verkefni var Albert svo ekki valinn. „Svo kemur næsti gluggi og ég er ekki valinn bara. Það eru tveir gluggar sem hann velur mig ekki, hann velur mig ekki af því ég er ekki með gott hugarfar að hans sögn. Það er eitt að velja ekki leikmann, hann er þjálfari og ræður. Hann þarf ekki að fara í viðtal og tala um hugarfarið mitt, sérstaklega ekki þegar hann er að ljúga því.

Albert er augljóslega enn pirraður út í Arnar Þór og fór að skjóta föstum skotum til baka í viðtalinu við Chess after Dark. „Ég er búin að vera með marga frábæra þjálfara í gegnum ferilinn, sem eru miklu færari en Arnar Þór Viðarsson. Ég er að tala um Arne Slot, Pascal Jansen, Marco van Bommell, Boudewijn Zenden, Philip Cocu Ruud van Nistelrooy. Allir hafa þeir komið með uppbyggilega gagnrýni, það hefur enginn annar en Arnar Þór talað um hugarfarið mitt. Mér fannst það skrýtið, hann þurfti ekki að segja þetta. Hann fer beint í manninn, ég commentaði aldrei á það.“

Arnar Þór ætlaði að velja Albert fyrir glugga sem reyndist hans síðasti með landsliðinu. „Svo kemur gluggi í mars, ég eignast dóttur um miðjan febrúar. Hann hringir í mig tilneyddur því að ég var að spila hrikalega vel mig með Genoa, hann segist ætla að velja mig í hópinn. Ég segi við hann að dóttir mín sé nýfædd, að ég fái fimm daga frí og ég ætli að vera með henni. Hún fæðist á Íslandi og ég er að spila á Ítalíu, ég ætlaði að eyða tímanum á Íslandi með henni. Hann bara tekur því og segir að það sé frábært, mér leið eins og hann væri feginn að þurfa ekki að taka mig með í hópinn.“

„Ég fer til Íslands á meðan þessir leikir eru í gangi, hann fer í viðtal í þeim glugga og lýgur. Hann segir að ég hafi ekki viljað koma, það er fáránlegt.“

Eiður Smári.

Næst var Albert spurður í Twitter færslu Eiðs Smára Guðjohnsen sem kom í kjölfarið af því að faðir Alberts hafði gagnrýnt Arnar Þór og hans störf. Eiður var þá hættur með aðstoðarþjálfari liðsins. „Nei ég tók því ekki persónulega, ég get ekki sagt að ég hafi haft gaman af henni. Það truflaði mig ekki, var þetta ekki um miðja nótt og hann verið ferskur bara,“ segir Albert en Twitter færsla Eiðs kom klukkan 19:50 þann 17 mars.

Albert segist hafa hugsað um að hætta í landsliðinu og endaði þessa umræðu á því að fara í eina tveggja fóta tæklingu á Arnar Þór. „Ég hugasði það að hætta í landsliðinu, það var ekki bara út af Arnari. Mér fannst ég ekki vera að fá nógu mikið back up frá stjórninni eða formanninum. Að leyfa honum að vaða yfir mig, viðtal eftir viðtal. Mig langaði að commenta á þetta en pabbi sagði alltaf við mig að ég yrði lengur í landsliðinu en hann og að hann væri að grafa sína eigin gröf. Það var raunin, hann gróf sína eigin gröf og rest in peace,“ sagði Albert að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guðmundur fer ítarlega yfir skiptin upp á Skaga og fyrstu dagana – „Sé því ekkert til fyrirstöðu að við getum ráðist á allt og alla“

Guðmundur fer ítarlega yfir skiptin upp á Skaga og fyrstu dagana – „Sé því ekkert til fyrirstöðu að við getum ráðist á allt og alla“
433Sport
Í gær

Gjörbreytt staða Mainoo og má búast við að viðræður hefjist brátt

Gjörbreytt staða Mainoo og má búast við að viðræður hefjist brátt