fbpx
Mánudagur 19.janúar 2026
433Sport

Hvetur Salah til að ræða við Messi um lífið og tilveruna í Bandaríkjunum

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 12. desember 2025 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

MLS-deildin í Bandaríkjunum hefur hafið áhlaup til að reyna að fá Mohamed Salah, lykilmann Liverpool, til að flytja vestur um haf og feta í fótspor Lionel Messi.

Framtíð Salah, sem er 33 ára, er óviss hjá Liverpool undir stjórn Arne Slot eftir sprengiviðtal þar sem Egyptinn sagðist hvorki eiga í neinu sambandi við knattspyrnustjórann né hafa fengið sanngjarna meðferð hjá félaginu.

Í kjölfarið var hann ekki í leikmannahópi Liverpool í sigri liðsins gegn Inter Mílanó og hafa vangaveltur um brottför hans aukist. Þrjú félög í Sádi-Arabíu hafa einnig sýnt honum áhuga.

Nú hefur yfirmaður MLS, Don Garber, blandað sér í umræðuna eftir að greint var frá áhuga San Diego og Chicago Fire.

„Ef Salah myndi einhvern tímann ákveða að koma til MLS myndum við taka á móti honum með opnum örmum,“ sagði Garber.

Hann hvatti Salah jafnframt til að tala við Lionel Messi og Thomas Müller um reynslu þeirra í deildinni og hversu vel þeim hafi liðið þar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hvað þýðir þetta fyrir framtíð Alberts? – „Það er bara flott“

Hvað þýðir þetta fyrir framtíð Alberts? – „Það er bara flott“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Jökull hreinskilinn og segir mikið hafa breyst í fyrra – „Ég get boðið upp á svo miklu meira“

Jökull hreinskilinn og segir mikið hafa breyst í fyrra – „Ég get boðið upp á svo miklu meira“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jökull var gómaður við að ræða launamál sín í Krónunni – „Var fyrir aftan mig og þá hugsaði ég, ég er búinn að vera“

Jökull var gómaður við að ræða launamál sín í Krónunni – „Var fyrir aftan mig og þá hugsaði ég, ég er búinn að vera“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Langskotið og dauðafærið – Óvænt úrslit á Old Trafford?

Langskotið og dauðafærið – Óvænt úrslit á Old Trafford?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Keane heldur áfram og hjólar nú fast í eiginkonu Carrick – Ástæðan grafin upp

Keane heldur áfram og hjólar nú fast í eiginkonu Carrick – Ástæðan grafin upp
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gagnrýnd fyrir að vera léttklædd í skítakulda – Í gegnsæjum fötum í fjallinu

Gagnrýnd fyrir að vera léttklædd í skítakulda – Í gegnsæjum fötum í fjallinu