
Michail Antonio, fyrrum framherji West Ham, er sagður æfa með Leicester City í von um að eiga ótrúlega endurkomu í atvinnumannafótbolta.
Antonio, sem er 35 ára, hefur verið samningslaus frá því að hann varð samningslaus hjá West Ham sumarið 2025, nokkrum mánuðum eftir alvarlegt bílslys sem setti líf hans í hættu.
Antonio klessti þá á tré á leið frá æfingu og var hann klipptur úr bílnum og fluttur með þyrlu á sjúkrahús þar sem hann gekkst undir bráðaaðgerð á fæti. Læknar óttuðust jafnvel að hann gæti átt í vandræðum með að ganga aftur, hvað þá spilað fótbolta, en hann vann ótrúlegt afrek og spilaði aftur með landslið Jamaíka í júní 2025.
Samstarfi hans við West Ham lauk þó fljótlega eftir endurkomuna. Antonio hefur síðan æft vel sjálfur og meðal annars fengið aðstoð frá Brentford við það.
Nú er hann sagður kominn á æfingasvæði Leicester samkvæmt The Telegraph. Engin ákvörðun hefur verið tekin, en liðið gæti þurft á reynslu hans að halda eftir fallið í B-deildina og brottför Jamie Vardy til Ítalíu.