fbpx
Sunnudagur 25.janúar 2026
433Sport

Kemur Gyokeres til varnar

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 12. desember 2025 18:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hefur fulla trú á að það muni kvikna á Viktor Gyokeres, sem var keyptur til félagsins frá Sporting í sumar, þrátt fyrir erfitt gengi og meiðsli undanfarið.

„Leikmaðurinn þarf að aðlagast öðruvísi uppstillingu. Við verðum að koma honum í bestu mögulegu stöðurnar svo hann geti sprungið út og náð að sína sitt besta,“ sagði Arteta á blaðamannafundi í dag.

„Það er líka mikilvægt að hann nái vel saman við aðra leikmenn. Áður en hann meiddist var hann á frábærum stað. Mörkin munu koma og við verðum mjög ánægð með hann.“

Miklar vonir voru bundnar við Gyokeres þegar Arsenal keypti hann í sumar og er mikilvægt fyrir félagið að fá hann í gang sem fyrst, en liðið er í hörkutitilbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guðmundur fer ítarlega yfir skiptin upp á Skaga og fyrstu dagana – „Sé því ekkert til fyrirstöðu að við getum ráðist á allt og alla“

Guðmundur fer ítarlega yfir skiptin upp á Skaga og fyrstu dagana – „Sé því ekkert til fyrirstöðu að við getum ráðist á allt og alla“
433Sport
Í gær

Gjörbreytt staða Mainoo og má búast við að viðræður hefjist brátt

Gjörbreytt staða Mainoo og má búast við að viðræður hefjist brátt