

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, segist ætla að eiga samtal við Mohamed Salah í dag, en niðurstaða þess mun ráða því hvort Egyptinn verði í leikmannahópi liðsins gegn Brighton á Anfield á laugardag.
Slot ræddi við Sky Sports News og var spurður hvort Salah hefði þegar spilað sinn síðasta leik fyrir félagið. „Ég mun eiga samtal við Mo í dag. Niðurstaða þess samtals mun skera úr um hvernig við höldum áfram,“ sagði Slot.
Hann lagði áherslu á að vilja ræða málin beint við leikmanninn. „Það sem ég þarf núna er samtal við hann. Næst þegar ég tala opinberlega um Mo ætti það að vera eftir að ég hef rætt við hann, ekki hér. Það er ekki mikið meira sem ég get sagt. Ég tala við hann í dag og niðurstaðan mun hafa áhrif á hvernig hlutirnir líta út á morgun.“
Slot bætti við að samskiptin hefðu verið mikil síðustu daga. „Við höfum talað mikið saman í síðustu viku, allt frá leiknum gegn Sunderland. Það hafa verið mörg samtöl á milli fulltrúa hans og félagsins, sem og milli mín og hans.“
Aðspurður sérstaklega hvort hann vilji að Salah verði áfram hjá Liverpool svaraði Slot. „Ég hef enga ástæðu til annars en að vilja Mo áfram. Félagið hefur unnið fjölda leikja með hann í liðinu.“