fbpx
Sunnudagur 25.janúar 2026
Fréttir

Inga hjólar í Viðskiptablaðið – „Mér leiðast svona falsfréttir og ég hvet ykkur til að vera gagnrýnin“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 12. desember 2025 19:42

Inga Sæland.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra er ekki par sátt við frétt Viðskiptablaðsins í dag. Í fréttinni kemur fram að eignamiklir Íslendingar gætu fengið desembereingreiðslu sem ráðherra mælir nú fyrir til þeirra sem fengið hafa greiddan ör­orkulíf­eyri, hlutaör­orkulíf­eyri, elli­líf­eyri eða sjúkra- og endur­hæfingar­greiðslur á árinu 2025.

Frumvarpinu er ætlað að koma til móts við þá tekjulægstu, en samkvæmt Viðskiptablaðinu er ekkert eignaþak í frumvarpinu þrátt fyrir frítekjumark. Þannig gætu eignamiklir einstaklingar með tekjur í kringum eina milljón á mánuði enn fengið fulla eingreiðslu.

„Ég ætla að benda ykkur á falsfrétt sem er núna á Viðskiptablaðinu um að efnamiklir öryrkjar séu að fá greiðslur úr ríkisstjóði í formi eingreiðslunnar, sem vonandi kemur í næstu viku. Svokallaður jólabónus. Það er rangt. Við höfðum úr ákveðinni upphæð að spila, þetta voru um 2 milljarðar króna.

Segir Inga að þeirri upphæð sé skipt á milli langefnaminnstu eldri borgara og öryrkja.

„Mér leiðast svona falsfréttir og ég hvet ykkur til að vera gagnrýnin. Það er verið að skrökva upp á okkur, það er verið að reyna reyna að láta okkur líta illa út. Þetta eru pólitískir andstæðingar sem eru þarna hjá Hádegismóra í endalausum aðförum að okkur. Þetta er ómaklegt og þetta er ósatt.“

Segist Inga skilja vel að það sé einnig efnaminna fólk sem hafi flutt erlendis og hún geri sér grein fyrir því. En í þessu tilviki hafi þurft að sníða stakk eftir vexti.

„Það er mun dýrara að lifa hér heima en nokkurs staðar annars staðar í heiminum. Fólk hér er að glíma við okurvexti, okur verðbólgu, alveg hrikalega dýran húsnæðiskostnað, okurleigu og alveg ótrúlega dýra matarkörfu. Þannig að þessar krónur sem við þó erum að reyna að rétta að fátækasta fólkinu okkur fyrir jólin, þær krónur duga skammt í þeirri dýrtíð sem við búum við.“

Biður hún fólk að vera gagnrýnið og koma í liðið.

„Berjumst til sigurs og gerum það saman. Og ekki láta óprúttna aðila skrökva og teygja og hártoga sannleikann í allar áttir. Það er alls ekki rétt. Ég segi að við erum rétt að byrja, þetta er bara fyrsta árið okkar, það er rétt svona akkúrat á þessum tíma fyrir ári síðan sem við sátum saman svokallaðar valkyrjur og vorum að búa til þessa indælu ríkisstjórn sem þið eigið í dag.“

Í myndbandinu ræðir Inga einnig um kílómetragjaldið og segir hún fáa hafa haft hærra um það en Sjálfstæðisflokkurinn sem smíðaði frumvarpið um kílómetragjaldið.

„Þeir sem greiða allt okrið eru þeir sem eru efnaminnstir og keyra á bensín- og dísilbílum,“
segir Inga og ræðir gjaldið frekar og segist verið að jafna byrðarnar.

„Við erum ekki að halda áfram að níðast á fátækasta fólkinu eins og fyrri ríkisstjórn gerði, bara alls ekki. Gerið ykkur grein fyrir að þið eigið yndislega ríkisstjórn, við erum almannahagsmunaríkistjórn. Við erum bara spáný, við eigum eftir þrjú ár, þið eigið eftir að sjá ótrúlega hluti gerast. Jólabónusinn að fara í gegn, sennilega á mánudag samþykktur út úr þinginu. Síðan er það aldurstengdaörorkuuppbótin, víxlverkunin, allt saman, allt saman, það er allt að ganga, góðir hlutir gerast hægt. En þeir eru samt búnir að gerast all nokkuð hratt hjá okkur og gengur mjög vel. Við tökum jafnóðum á verkefnunum og reynum að leysa þau.

Þessi ríkisstjórn leysir öll verkefnin saman, það skiptir öllu máli að þið eigið samhenta ríkisstjórn, að þið skulið eiga forystumenn sem bera virðingu og hlýhug hvert til annars og þess vegna segi ég bara: Komiði með, komiði öll með og við skulum gera þetta saman. Við eigum eftir að byggja enn þá betri framtíð, við bara gerum það saman. Mér þykir ótrúlega vænt um ykkur.“

Þakkar Inga fyrir fallegar kveðjur og stuðning eftir að hafa fengið ansi ómaklega ágjöf oft á tíðum, segist hún ekki vera að gefast upp að berjast fyrir réttindum borgaranna og sinni hugsjón.

„Ég skal koma ykkur öllum í 450 þúsund útborgað áður en langt um líður, það voru aldrei kosningasvik. Hættið að hlusta á þá sem eru að reyna að gera lítið úr þeim góðu verkum sem við erum að vinna. Elska ykkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Spyr hvort stjórnvöld séu reiðubúin að spyrja þjóðina um verðtrygginguna

Spyr hvort stjórnvöld séu reiðubúin að spyrja þjóðina um verðtrygginguna
Fréttir
Í gær

Bílastæðastríð á Grensásvegi – „Því miður höfum við því ekki annan kost en að ráðast í lögfræðilegar aðgerðir“

Bílastæðastríð á Grensásvegi – „Því miður höfum við því ekki annan kost en að ráðast í lögfræðilegar aðgerðir“
Fréttir
Í gær

Lilja vill verða formaður Framsóknarflokksins

Lilja vill verða formaður Framsóknarflokksins
Fréttir
Í gær

Trump og fjölskylda hans hafa auðgast um stjarnfræðilegar upphæðir síðasta árið

Trump og fjölskylda hans hafa auðgast um stjarnfræðilegar upphæðir síðasta árið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjúkandi vond út í Vinnumálastofnun – „Óásættanleg og hreinlega móðgandi“

Fjúkandi vond út í Vinnumálastofnun – „Óásættanleg og hreinlega móðgandi“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maður á sjötugsaldri misþyrmdi 12 ára dreng

Maður á sjötugsaldri misþyrmdi 12 ára dreng