fbpx
Mánudagur 19.janúar 2026
433Sport

Guardiola fjarverandi í dag vegna persónulegra vandamála

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 12. desember 2025 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, mun ekki sitja fyrir á blaðamannafundi fyrir leik liðsins gegn Crystal Palace vegna persónulegra vandamála.

Fjarvera hans er þó ekki talin hafa áhrif á undirbúning City fyrir viðureignina í ensku úrvalsdeildinni sem fram fer á Selhurst Park á sunnudag.

Guardiola mun samkvæmt því standa á hliðarlínunni og stýra liðinu í leiknum eins og venjulega.

Aðstoðarmaður hans, Kolo Touré, mun í staðinn svara spurningum fjölmiðla. Þetta verður í fyrsta skipti sem Touré mætir á blaðamannafund í þessu hlutverki, en hann var gerður að aðstoðarþjálfara City síðasta sumar.

Manchester City hefur komið sér aftur inn í titilbaráttuna eftir hikst í upphafi tímabils. Liðið er nú aðeins tveimur stigum á eftir toppliðinu Arsenal og hefur unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Hvað þýðir þetta fyrir framtíð Alberts? – „Það er bara flott“

Hvað þýðir þetta fyrir framtíð Alberts? – „Það er bara flott“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Jökull hreinskilinn og segir mikið hafa breyst í fyrra – „Ég get boðið upp á svo miklu meira“

Jökull hreinskilinn og segir mikið hafa breyst í fyrra – „Ég get boðið upp á svo miklu meira“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jökull var gómaður við að ræða launamál sín í Krónunni – „Var fyrir aftan mig og þá hugsaði ég, ég er búinn að vera“

Jökull var gómaður við að ræða launamál sín í Krónunni – „Var fyrir aftan mig og þá hugsaði ég, ég er búinn að vera“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Langskotið og dauðafærið – Óvænt úrslit á Old Trafford?

Langskotið og dauðafærið – Óvænt úrslit á Old Trafford?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Keane heldur áfram og hjólar nú fast í eiginkonu Carrick – Ástæðan grafin upp

Keane heldur áfram og hjólar nú fast í eiginkonu Carrick – Ástæðan grafin upp
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gagnrýnd fyrir að vera léttklædd í skítakulda – Í gegnsæjum fötum í fjallinu

Gagnrýnd fyrir að vera léttklædd í skítakulda – Í gegnsæjum fötum í fjallinu