

Stefán Pálsson, sagnfræðingur og sparkspekingur með meiru, var gestur Helga Fannars í Íþróttavikunni.
Drátturinn í riðla heimsmeistaramótsins vestan hafs næsta sumar fór öfugt ofan í marga. Tók hann yfir tvær klukkustundir og var lopinn teygður hressilega.
Þá var Donaldo Trump Bandaríkjaforseta veitt sérstök Friðarverðlaun FIFA, sem sambandið hefur aldrei veitt nokkrum áður.
Stefán var ekki hrifinn af drættinum og athöfninni í heild.
„Menn veita bara Friðarverðlaun til að halda Trump glöðum. Ég held að það sé ekki hægt að finna mikið auðvirðilegri persónu en Infantino (forseta FIFA). Þetta er ótrúlegt,“ sagði Stefán.
Stefán benti þó á að þó hann sé gagnrýninn verði hann límdur við skjáinn þegar HM fer af stað. „Svo fáum við Sádi-Arabíu eftir átta ár. En maður horfir alltaf,“ sagði hann enn fremur léttur í bragði, en mótið verður haldið þar í landi 2034.
Þátturinn í heild er í spilaranum.