fbpx
Sunnudagur 25.janúar 2026
433Sport

Forsetinn biðlar til Real Madrid

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 12. desember 2025 19:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Javier Tebas, forseti La Liga, hvetur Real Madrid til að halda tryggð við Xabi Alonso þrátt fyrir erfitt gengi.

Það er talið að farið sé að hitna vel undir Alonso, sem hefur aðeins unnuð svo af síðustu átta leikjum. Þá er fjallað um meint ósætti hans við nokkrar af stjörnum Real Madrid.

„Ég hef séð þessa mynd oft áður. Real Madrid kann að snúa svona stöðum við. Xabi Alonso er með Madrid-DNA og ég trúi að hann, leikmennirnir og félagið fari saman í gegnum þetta,“ segir Tebas þó.

Alonso kom til Real Madrid í sumar eftir að hafa skilað frábæru starfi með Bayer Leverkusen í Þýskalandi.

„Leyfið honum að halda áfram. Hann hefur þegar sannað sig, það er ekki auðvelt að vinna Bundesliguna án þess að tapa. Hann er fullkomlega tilbúinn í að klára þetta,“ segir Tebas enn fremur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guðmundur fer ítarlega yfir skiptin upp á Skaga og fyrstu dagana – „Sé því ekkert til fyrirstöðu að við getum ráðist á allt og alla“

Guðmundur fer ítarlega yfir skiptin upp á Skaga og fyrstu dagana – „Sé því ekkert til fyrirstöðu að við getum ráðist á allt og alla“
433Sport
Í gær

Gjörbreytt staða Mainoo og má búast við að viðræður hefjist brátt

Gjörbreytt staða Mainoo og má búast við að viðræður hefjist brátt