Þúsundþjalasmiðurinn Tobba Marinósdóttir stofnaði nýverið fyrirtækið Náttúrulega gott með móður sinni, Guðbjörgu Birkis Jónsdóttur. Þær sérhæfa sig í náttúrulega góðu granóla sem hefur fengið góðar viðtökur í verslunum landsins. Um er að ræða sannkallað fjölskyldufyrirtæki því amma Tobbu, Regína Birkis, stendur vaktina sem pökkunarstjóri, en hún verður 83 ára eftir nokkra daga.