fbpx
Þriðjudagur 11.nóvember 2025
Fókus

Nýkrýndir Norðurlandameistarar á Skákhátíð í Árneshreppi um næstu helgi

,,Til lífs og til gleði!“

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Mánudaginn 3. júlí 2017 19:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhann Hjartarson og Lenka Ptacnikova, sem nú um helgina urðu Norðurlandameistarar í skák eru bæði meðal keppenda á Skákhátíð í Árneshreppi um næstu helgi, 7. Til 9. júlí. Skákfélagið Hrókurinn stendur fyrir hátíðinni, og verður hápunkturinn laugardaginn 8. júlí þegar haldið verður minningarmót Jóhönnu Kristjónsdóttur. Yfirskrift hátíðarinnar er sótt í kjörorð Jóhönnu, sem var dyggur liðsmaður Hróksins: Til lífs og til gleði.

Meðal annarra keppenda er nýbakaður Íslandsmeistari, Guðmundur Kjartansson, stórmeistarinn Jón L. Árnason, og þær Guðlaug Unnur Þorsteinsdóttir, Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir og Áslaug Kristinsdóttir, sem allar hafa orðið Íslandsmeistarar.

Gestir koma víða að: Úr öllum fjórðungum Íslands, Grænlandi og Færeyjum.

Hátíðin hefst með tvískákarmóti í húsi Ferðafélags Íslands í Norðurfirði föstudagskvöldið 7. júlí kl. 20. Í tvískák eru tveir saman í liði, og iðulega afar heitt í kolunum.

Gert er ráð fyrir allt að 40-50 keppendum á stórmótinu í samkomuhúsinu í Trékyllisvík daginn eftir og ættu áhugasamir að melda sig sem fyrst. Minningarmótið hefst klukkan 14 og verða tefldar 8 umferðir, með 10 mínútna umhugsunartíma. Verðlaun á mótinu eru í senn vegleg og óvenjuleg, m.a. listaverk sem Guðjón Kristinsson frá Dröngum og Valgeir Benediktsson í Árnesi vinna sérstaklega af þessu tilefni. Þá verða ýmsir munir úr fjarlægum löndum, vegleg gjafabréf og fleiri vinningar.

Á laugardagskvöldið verður hátíðarkvöldverður í félagsheimilinu, þar sem ýmislegt verður til skemmtunar, og verðlaun á minningarmóti Jóhönnu afhent.

Hátíðinni lýkur með hraðskákmóti í Kaffi Norðurfirði sunnudaginn 9. júlí kl. 12. Þar verða tefldar 5 mínútna skákir, 7 umferðir, og sigurvegarinn hlýtur nafnbótina Norðurfjarðarmeistarinn 2017.

Áhugasamir ættu að skrá sig sem fyrst hjá hrafnjokuls@hotmail.com eða chesslion@hotmail.com en mjög góð tjaldstæði eru við Finnbogastaðaskóla og í Norðurfirði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Augnlæknar nefna það sem þeir myndu aldrei gera: „Nudda augun“

Augnlæknar nefna það sem þeir myndu aldrei gera: „Nudda augun“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Henni virðist ætlað að koma inn samviskubiti hjá mæðrum“

„Henni virðist ætlað að koma inn samviskubiti hjá mæðrum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gunnar segir að íslensk kona hafi verið numin á brott af geimverum: „Hún er mjög hátt sett bara í sínu starfi og enginn rugludallur“

Gunnar segir að íslensk kona hafi verið numin á brott af geimverum: „Hún er mjög hátt sett bara í sínu starfi og enginn rugludallur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Líf stjörnunnar orðið að algjöru helvíti í fangelsinu – Trúði því aldrei að hans fyrrverandi gæti verið svona grimm

Líf stjörnunnar orðið að algjöru helvíti í fangelsinu – Trúði því aldrei að hans fyrrverandi gæti verið svona grimm