fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Framsóknarmenn mæta verst á fundi fastanefnda

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Föstudaginn 9. júní 2017 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins.

Framsóknarflokkurinn er með slökustu mætinguna á fundi fastanefnda Alþingis. Alls hafa þingmenn flokksins aðeins mætt á 83 prósent þeirra funda sem þeir voru boðaðir á. Þingflokkur Vinstri grænna skarar fram úr með 98 prósenta mætingu sem er mun meira en þingflokkar meirihlutans sem þó fara með forystu í öllum fastanefndum. Helgast munurinn af því að flokkurinn er afar duglegur að kalla til varamenn á fundi ef forföll verða. Þannig eru Vinstri- græn aðeins með 2 prósent óútskýrð forföll á nefndarfundi en aðrir flokkar, að Viðreisn undanskilinni, á bilinu 7–14 prósent. Mæting þingmanna á nefndarfundi er æði misjöfn. Guðjón S. Brjánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er með 100 prósenta mætingu en fyrrverandi forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, er aðeins með 33 prósenta mætingu. Þá virðast alþingismenn afar sjaldan verða veikir og Vinstri græn, einn flokka, misstu aldrei af fundi vegna utanlandsferða.

Mætingarskylda á nefndarfundi

Fastanefndir Alþingis eru átta talsins alls og eru að jafnaði skipaðar níu þingmönnum hver. Starfið innan nefndanna er gríðarlega mikilvægur hlekkur í starfi Alþingis. Hins vegar er álagið æði misjafnt í nefndunum en til að mynda fundaði fjárlaganefnd 51 sinni á síðasta þingi en utanríkismálanefnd aðeins 24 sinnum. Meirihluti nefndarmanna þarf að sækja fundina svo að þeir teljist ályktunarbærir.

Yfirleitt er það ekki vandamál en þó lagði minnihlutinn í utanríkismálanefnd fram eftirfarandi bókun á 17. fundi nefndarinnar: „Fulltrúar Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og Pírata bóka athugasemdir við að meirihlutinn hafi margsinnis ekki virt þingsköp sem kveða á um mætingarskyldur þingmanna á nefndarfundi og að fulltrúar meirihlutans kalli ekki inn varamenn ef forföll verða í þeirra hópi. Fulltrúar minnihlutann bera þar með ábyrgð á því að fundir séu mannaðir og fundir séu þar með lögmætir. Það gangi ekki upp til lengdar.“

Þetta er athyglisvert í ljósi þess að mætingarskylda er á nefndarfundi nema að „nauðsyn banni“ eins og segir orðrétt í lögum. Þrátt fyrir það eru óútskýrð forföll nokkuð algeng en munurinn á nefndarfundum og almennum þingfundum er sá að mæting þingmanna er kirfilega færð til bókar í fundargerðum nefnda. Blaðamaður kafaði því ofan í rúmar fjögur hundruð fundargerðir og tók mætinguna saman.

Nánar er fjallað um mætingu á nefndarfundi í helgarblaði DV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Veglegt sérblað um EM
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð