fbpx
Fimmtudagur 14.ágúst 2025
Eyjan

Borgin kveður dagforeldra með þögn!!

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 3. október 2019 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldóra Björk Þórarinsdóttir, dagforeldri og formaður Barnsins félags dagforeldra í Reykjavík ritar:

Nú líður að lokum okkar starfstéttar. Dagforeldrar hafa liðsinnt borginni í langan tíma og veitt foreldrum ungra barna daggæslu með 5 börnum og veitt þeim persónulega og nána þjónustu, sem ung börn þurfa. Það er alveg ótrúlegt að Reykjavíkurborg, sem áður trónaði á toppnum með niðurgreiðslu til handa foreldrum ungra barna, sé í dag, öftust á merinni.

Önnur sveitarfélög sinna barnafólki af meiri kostgæfni og hlúa að , en borgin situr eftir.

Það hefði t.d. mátt bjóða leigustyrk til þeirra sem að leigja rándýra gæsluvelli á vegum borgarinnar vegna árferðis og miða þá við fjölda barna í gæslunni.

Borgin ræður inn nýja dagforeldra í haust sem að ekki ná að fylla plássin sín frekar en við hin sem að höfum starfað lengi. Lofa þeim öllu fögru og að stofnstyrk fái þau uppá 300.000.- sem að ekki hefur enn verið útfærður og enginn veit hvenær að verður greiddur út til nýju dagforeldrana það er að segja ef að þau ná að tóra árið í vinnu.

Í haust hefði verið rosalega gott fyrir dagforeldra að fá aðstöðustyrkinn sem að var samþykktur en ekki er gert ráð fyrir að setja hann inn í bráð eða á næstu árum til að hjálpa þeim dagforeldrum sem að ekki hafa náð að fylla í plássin sín. Eða að bjóða dagforeldrum sem að ekki eru með 4-5 börn viðbótar niðurgreiðslu til áramóta, því að við vitum öll að það er þá sem að vöntunin er.

Í gegnum áratugi hafa dagforeldrar sparað borginni þvílíka fjármuni í formi persónulegrar gæslu á sínum heimilum og stutt við barnafólk og borgina. Metnaður borgarinnar er enginn í formi samvinnu. Á meðan kappkosta önnur sveitarfélög við að hlúa sem best að daggæsluþáttum og bjóða val. Það vilja ekki allir barnmargar deildir leikskóla þar sem hávaði og ofkeyrsla á starfsfólk fer framúr öllu valdi. En haustið hjá dagforeldrum hefur verið það versta í manna minnum. Ekki hafa fengist börn í vistun sem þýðir aðeins eitt það að dagforeldrar eru að hætta í hrönnum, og hvað ætlar borgin að gera þegar líður að vori og hellingur að ungum börnum fá ekki vistun og foreldrar komast ekki til vinnu?

Sumir kjósa fámenna hlýlega gæslu þar sem sama manneskja eða tveir dagforeldrar saman, kappkosta við að veita ungviðinu þá andlegu næringu, almennilegan mat, góða gæslu og dagforeldrar í Reykjavík hafa svo sannarlega unnið sína plikt.

En ekki heyrist tíst frá borginni. Engin þakkargjörð þar. Bara takk og bless! Sorglega Reykjavík!

Að lokum fá dagforeldrar í borginni einn námskeiðsdag á ári og teljum við í stjórn Barnsins að sniðugt væri að borgin kosti kvíðanámskeið fyrir þá dagforeldra sem eftir eru. Því ekki er gott fyrir neinn vinnandi mann að hafa það hangandi yfir sér að vinna í deyjandi stétt og það í boði borgarinnar!!

Kveðja Stjórn Barnsins félags dagforeldra í Reykjavík

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Haraldur Briem látinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Minnisleysi ráðherrans

Óttar Guðmundsson skrifar: Minnisleysi ráðherrans
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa gert andstöðu við atkvæðagreiðslur að sérstöku baráttumáli

Segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa gert andstöðu við atkvæðagreiðslur að sérstöku baráttumáli
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Orðið á götunni: Höfundur hrunsins toppar sjálfan sig – kallar Kristrúnu og Þorgerði Katrínu „fermingarstúlkur“

Orðið á götunni: Höfundur hrunsins toppar sjálfan sig – kallar Kristrúnu og Þorgerði Katrínu „fermingarstúlkur“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu

Foringi herforingjastjórnarinnar hrósaði Trump sem aflétti þá refsiaðgerðum og tollum gagnvart landinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Er samtal svona hættulegt?