
Leikkonan Heiða Rún Sigurðardóttir, eða Heida Reed eins og hún er kölluð, segir frá því hvernig henni var sagt að mjaðmir hennar væru of stórar fyrir fyrirsætustörf og hvaða áhrif það hafði á hana. Heiða Rún fór með hlutverk Elizabeth Warleggan í þáttunum Poldark á BBC og sló í gegn í Stella Blomkvist.
Hún segir frá þessu í einlægri færslu á Instagram.
„Áður en ég var leikkona var ég fyrirsæta. Ég hef verið dæmd út frá útliti frá því að ég var fimmtán ára. Það er meira en hálft líf mitt! Ég hef aldrei komist á tískupallana því að þá, þó svo að ég var mun minni, voru mjaðmir mínar álitnar of stórar fyrir tískuiðnaðinn og ég hef aldrei gleymt því. En ég sé að það er að breytast núna, eins og í tískusýningu [Savage X Fenty, nærfatalínu Rihönnu], og það var svo valdeflandi að horfa á það,“ segir Heiða.
https://www.youtube.com/watch?time_continue=1&v=ACznbUUhbhA
„Ég er þakklát fyrir líkama minn og líka fyrir það hvernig ég lít út, en ég á líka erfitt með útlit mitt, ALLTAF. Lærin mín hristast helling og ég er með mun meiri appelsínuhúð en sést á þessari mynd! Ég á erfitt með að hreyfa mig reglulega, ég á flókið samband við mat, og ég er að vinna í öllu því, en það sem skiptir meira máli er að ég vil vinna í því að taka mér sjálfri alveg eins og ég er. Ég vil eiga minn hlut í því að halda samtalinu gangandi og deila minni reynslu með ykkur og vonandi mun einhver ykkar deila ykkar með mér.“
https://www.instagram.com/p/B2xTCR9pKJU/