fbpx
Þriðjudagur 28.október 2025

Barnalegur ríkislögreglustjóri

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 15. september 2019 12:15

Haraldur Johannessen. Mynd: Skjáskot af vef RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landssamband lögreglumanna hefur lýst yfir mikilli óánægju með embætti Ríkislögreglustjóra og fagnað ákvörðun dómsmálaráðuneytis um alhliða stjórnsýsluúttekt á embættið. Þetta eru svo sem ekkert nýjar fréttir. Embætti Ríkislögreglustjóra hefur ítrekað verið gagnrýnt fyrir hin ýmsu mál. Bílamiðstöðina, fatamál, sérsveitina sem og ráðningar eða skipanir í stöður við embættið. Má finna mikinn fjölda álita umboðsmanns Alþingis um stöðuveitingar innan embættisins þar sem umboðsmaður kemst ítrekað að því að ekki hafi verið farið eftir lögum. Þrátt fyrir allt þetta þá segist ríkislögreglustjóri gáttaður á yfirlýsingu Landssambands lögreglumanna. Enginn í sambandinu hafi haft samband við ríkislögreglustjóra með kvartanir. Þetta svar ríkislögreglustjóra verður að teljast grátbroslegt í ljósi sögunnar. Jafnframt bætti hann við að réttast væri að stjórnsýsluúttektin yrði framkvæmd um lögreglumál landsins eins og þau leggja sig, en ekki einskorðuð við hans embætti. Þetta er ákaflega fullorðin leið til að mæta gagnrýni; að þykjast ekkert vita og benda bara á aðra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Telur að þetta sé stigafjöldinn sem Arsenal þarf að sækja til að vinna deildina

Telur að þetta sé stigafjöldinn sem Arsenal þarf að sækja til að vinna deildina
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Tíu stærstu bitarnir sem geta farið frítt – Margir sem verða mjög eftirsóttir í vetur

Tíu stærstu bitarnir sem geta farið frítt – Margir sem verða mjög eftirsóttir í vetur
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Ofbeldisverk á Benzincafe – Hlaut stjörnulaga skurði á höfði

Ofbeldisverk á Benzincafe – Hlaut stjörnulaga skurði á höfði
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Valdi hóp fyrir undankeppni EM

Valdi hóp fyrir undankeppni EM
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Þungt högg fyrir De Bruyne og Napoli

Þungt högg fyrir De Bruyne og Napoli
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Örn gagnrýnir dómstóla fyrir að svipta aldraðan mann fjárræði – „Má leggja að jöfnu við hrægammana sem leggjast á bráð sína“

Örn gagnrýnir dómstóla fyrir að svipta aldraðan mann fjárræði – „Má leggja að jöfnu við hrægammana sem leggjast á bráð sína“