fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Veitingamenn nenna ekki í Costco

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Laugardaginn 10. júní 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/Sigtryggur Ari

Undanfarnar vikur, eða frá því að Costco-verslun var opnuð í Garðabæ, þann 23. maí síðastliðinn, hafa verðmiðar sem sýna samanburð á milli áfengisdeildar Costco og Vínbúðar ÁTVR verið vinsælt myndefni. Þar sem áfengisverslunin er aðeins ætluð þeim einstaklingum sem eru með vínveitingaleyfi hafa fjölmargir velt því fyrir sér hvort veitingageirinn muni í auknum mæli beina viðskiptum sínum þangað og lækka verð á móti. DV gerði úttekt á málinu í vikunni. Í ljós kom að dæmið er örlítið flóknara en sýnist í fyrstu. Það er ýmislegt sem liggur að baki verðinu hvort sem er hjá Costco, ÁTVR eða þeim íslensku smásölum sem selja áfengi á veitingastaði. DV ræddi við vörumerkjastjóra ECCP sem nokkra veitingamenn sem allir fagna aukinni samkeppni.

Logi Helgason: Einn af eigendum Dönsku krárinnar, Enska barsins, Lebowski bar og Kalda bar

„Við erum ekkert farnir að versla í áfengisdeild Costco. Það er engin þjónusta í kringum söluna hjá þeim en við reiðum okkur mikið á hana frá okkar birgjum.“ Þetta segir Logi, en viðurkennir þó að ef hann væri að selja gríðarlegt magn af einhverjum einum vöruflokki sem er til hjá Costco þá myndi það borga sig. „Eins og staðan er núna þá svarar þetta ekki kostnaði.“

Þá segir Logi að bjórinn sem þeir selja í dag sé nánast eingöngu úr krana. Þeir reyni að bjóða upp á eins gott verð og hugsast getur og á Dönsku kránni sé hægt að fá ódýrasta bjórinn í miðborg Reykjavíkur þegar „happy hour“ stendur yfir.

Að lokum kveðst Logi vonast til þess að innkoma Costco á íslenskan smásölumarkað verði til þess að íslensku birgjarnir endurskoði sjálfa sig. „Þeir eru samt líka með sína samninga erlendis og þurfa að standa við þá. Það sem skiptir mestu máli er að þetta er gríðarlega jákvætt fyrir íslenska neytendur og auðvitað fögnum við því.“

Ítarlega er fjallað um málið í helgarblaði DV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Veglegt sérblað um EM
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“

Ingu blöskraði – „Er hann að segja að kvótakóngarnir eigi sjávarauðlindina??“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Enn eru fornmenn á ferð

Enn eru fornmenn á ferð